Sumarbúðir UNICEF fyrir krakka á Vesturbakkanum og Gaza
Með stuðningi UNICEF hafa nú verið settar upp sumarbúðir fyrir krakka sem búa á Vesturbakkanum og á Gaza-svæðinu og þar með gefið um 17 þúsund stúlkum og drengjum tækifæri til að leika sér á ný.
Næstu þrjár vikurnar munu um 100 sumarbúðir vera starfræktar fyrir ungt fólk í Palestínu. Þar verður krökkum veitt tækifæri á að læra og bæta menntun sína, byggja upp sjálfstraust, leika sér og hafa gaman. Átökin milli Ísraels og Palestínu hafa rænt þúsundum barna hluta af barnæsku þeirra og því er þetta mikilvægur liður í að vernda börn og leyfa þeim að upplifa eðlilega barnæsku á átakatímum.
Litið er á búðirnar sem verndarsvæði fyrir börn þar sem þau geta flúið umhverfi átaka og lært um frið og friðaruppbyggingu.
,,Fyrir börn sem hafa eytt klukkustundum saman í að forðast byssumenn og girðingar til og frá skóla, sem geta ekki sofið á nóttunni vegna hljóðsins í byssuskotunum og sem hafa ekkert öruggt svæði til að leika sér á, þá veita þessar búðir öruggt barnvænt umhverfi þar sem þau geta notið sín og leikið sér hluta af sumri,” sagði David Bassiouni, sendifulltrúi UNICEF í Jerúsalem.