45% þungaðra HIV smitaðra kvenna fá nú lyf til að koma í veg fyrir að ófædd börn þeirra fái veiruna, samanborið við 24% árið 2006. Þetta er árangur sem skiptir máli. Vertu með.
Þú ert hér:
Laugardaginn 24. júlí mun Viktoría Áskelsdóttir hefja tveggja vikna sund yfir Breiðafjörð. Þetta verður í fyrsta skipti sem nokkur manneskja reynir að synda yfir fjörðinn.
Með sundinu skorar hún á fólk að gerast heimsforeldrar og þannig styrkja þurfandi börn um allan heim. Heimsforeldrar er leið fyrir einstaklinga til að styrkja verkefni UNICEF, Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, um allan heim og þar með fá tækifæri til að breyta lífi barna sem líða skort vegna fátæktar, þjást af sjúkdómum og heilsuleysi eða eru fórnarlömb stríðsátaka og náttúruhamfara. Hægt er að skrá sig sem heimsforeldri hér á síðunni.
Sundleiðin er um 62 km og mun Viktoría því synda um 4 km á dag. Sundið hefst við Lambanes hjá Brjánslæk kl. 15:30 og mun hún fara suður yfir fjörðinn og enda í Stykkishólmi þann 7. ágúst. Fylgdarbátar munu fylgja henni alla leið þar sem straumar geta verið harðir við sumar eyjarnar.
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, mun fylgja Viktoríu frá bryggju og einnig synda síðasta spölinn með henni. Öllum er þó velkomið að slást í för með henni sér til hressingar!
Viktoría Áskelsdóttir er 46 ára, en verður 47 ára þann 25. júlí. Hún verður því syndandi í um 10 gráða heitum sjó á afmælisdaginn.