UNICEF flytur birgðir til fórnarlamba hamfaranna í Asíu
UNICEF flytur nú í snarheitum birgðir til þeirra strandsvæða í Asíu sem urðu fyrir flóðbylgjunni vegna jarðskjálftans síðasta sunnudag.
„Hundruð þúsunda manna börðust fyrir lífi sínu þegar flóðbylgjurnar skullu á síðastliðinn sunnudag. Nú þurfum við að aðstoða fólkið í baráttunni gegn hrikalegum afleiðingum hamfaranna,“ sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF. „Fyrir börnin verða næstu dagar afar mikilvægir.”
Þeir sem lifðu af flóðbylgjuna, sem lagði strendur um alla Asíu í rúst og varð yfir 23.000 manns að bana, reyna nú eftir fremsta megni að finna sína nánustu og grafa eða brenna lík hinna látnu.
„Í flestum þessara landa er meðalaldur íbúa mjög lágur og því er hugur okkar hjá börnum sem misst hafa foreldra sína eða hafa orðið viðskila við foreldra sína,” sagði Carol Bellamy á mánudag.
Yfir 13.000 manns eru talin hafa látið lífið á Sri Lanka, 3.500 á Indlandi, 4.500 á Indónesíu og 866 á Taílandi þegar allt að 10 metra hár hafveggur skall óvænt á strendur þessara landa á sunnudagsmorgun.
Lisette Burgers, starfsmaður UNICEF á Indlandi, var í heimsókn í borginni Chennai þegar hamfarirnar skullu á.
„Við vorum að koma frá þorpi þar sem 200 af 500 húsum þorpsins höfðu verið lögð í rúst. Í þessu þorpi var eyðileggingin víðtæk. Um 200 bátar höfðu skollið á húsum, jafnvel steypt hús höfðu gjöreyðilagst,” sagði Lisette.
UNICEF, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna og samstarfsaðilum þeirra vinna nú með stjórnvöldum hvers lands að því að meta þörf á aðstoð og veita nauðsynlega hjálp til fórnarlamba hamfaranna.
„Einu góðu fréttirnar eru að UNICEF er á staðnum, við erum að störfum og við bregðumst samstundis við, ásamt öðrum stofnunum Sameinuðu þjóðanna,” sagði Carol Bellamy. „Lyf, sjúkravörur og efni til bygginga skýla eru á leiðinni frá mismunandi löndum. Við höfum fært til fjármagn í fjárhagsáætlun okkar fyrir þessi lönd og því þurfum við ekki að bíða eftir vilyrði nokkurs. Hjálparteymi okkar hafa þegar lagt af stað. Við viljum gera eins mikið og við mögulega getum,” sagði Bellamy.
UNICEF hefur þegar svarað beiðni stjórnvalda í Sri Lanka um efnivið fyrir skýli, og þegar hafa verið send yfir 30.000 teppi og svefnmottur, ásamt stuttermabolum og öðrum klæðnaði frá neyðarbirgðum UNICEF. Birgðaflug frá Kaupmannahöfn mun lenda í Sri Lanka á þriðjudag. Í þeim birgðum má finna saltupplausnir fyrir veik börn, sjúkravörur sem nægja 15.000 manns í þrjá mánuði, tjöld, teppi og fleiri nauðsynjavörur. Meira en 5% íbúa Sri Lanka urðu fyrir beinum áhrifum hamfaranna.
UNICEF styður við neyðaraðgerðir stjórnvalda á Indlandi. Í ríkinu Tamil Nadu, á suðurhluta Indlands, veitir UNICEF hundruð þúsunda vatnshreinsitaflna, 1.600 vatnstanka, sem hver tekur 500 lítra af vatni og gagnast þannig heilu samfélagi, 200.000 pakka af saltupplausnum fyrir veik börn, sjúkravörur sem nægja 30 heilsugæslustöðvum og 30.000 teppi.
Önnur indversk ríki sem urðu fyrir flóðbylgjunum skýra ekki frá þörfum fyrir aðstoð á þessari stundu, þó að ástæða sé fyrir því að huga að hinum indversku eyjum Andaman og Nicobar. Eyjarnar tvær liggja nálægt jarðskjálftamiðjunni og ekki hefur tekist að koma á áreiðanlegu sambandi við þær.
Starfsmenn UNICEF á Indónesíu eru hluti af stærra matsteymi Sameinuðu þjóðanna, sem er nú statt í Aceh-héraðinu við mat á þörf á neyðaraðstoð. Verið er að lesta flugvél af birgðum sem senda á til Indónesíu, má þar nefna sjúkravörur, næringarbirgðir fyrir börn, vatnshreinsitöflur og efni til þess að byggja skýli. Samskipti við afskekkt svæði Aceh eru dræm og búist er við að betri mynd af þörfum svæðisins komi í ljós á næstu tveimur sólarhringum.
Á Maldív-eyjum, sem verst urðu úti vegna flóðbylgnanna, hafa UNICEF og aðrar stofnanir Sameinuðu þjóðanna unnið með stjórnvöldum að því að samræma aðgerðir alþjóðlegra hjálparstofnanna. Dæmi um slíkar aðgerðir er útvegun vatnshreinsitaflna, klæðnaðar, matvæla, efniviðs fyrir skýli og annarrar nauðsynjavöru. Samskipti við minni eyjar í Maldív-eyjaklasanum eru dræm og búist er við að þær eyjar muni einnig þurfa aðstoð.
Á Taílandi, Bangladess og Myanmar hefur UNICEF stutt stjórnvöld í því að mæta þörfum fólksins. Áhrif hamfaranna voru ekki eins víðtæk og í áðurnefndum löndum, þó að enn megi vænta frekari upplýsinga um afleiðingar flóðbylgnanna.
UNICEF hefur starfrækt landsskrifstofur í hverju áðurgreindra landa og starfsmenn þar eru sérfræðingar sem búa þar og starfa árið um kring.
„Tíminn er mikilvægasti þátturinn á þessari stundu,” sagði Carol Bellamy. „Mikill fjöldi fólks hefur horft upp á heimili sín, lífsviðurværi og líf lögð í rúst. Það þarfnast hjálpar okkar tafarlaust.”