Vissir þú að...

á árinu 2006 keypti UNICEF nærri 25 milljónir moskító-flugnaneta eða 40% af heildarframleiðslu þeirra á heimsvísu. Flugnanetið kemur í veg fyrir malaríu, en 1 af hverjum 5 dauðsföllum í Afríku má rekja til malaríu.

Þú ert hér:  

Börn og ungmenni leggja tillögur sínar fram við G8

Eftirfarandi eru niðurstöður C8-fundar UNICEF sem lauk í gær 5. júlí í Dunblane, Skotlandi. Fulltrúarnir, sem margir hafa reynslu af mikilli fátækt, HIV/alnæmi, stríði og vinnuþrælkun, voru 17 ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára frá þróunarlöndum og G8-ríkjum. Niðurstöðurnar voru kynntar í gær og afhendar fulltrúm G8 fundarins. Þess má geta að UNICEF reyndi ekki að hafa áhrif á umræður eða útkomu fundarins með neinum hætti.

Við, 17 ungmenni, höfum komið saman hvaðan æva af úr heiminum til að taka þátt í C8, útgáfu barna af G8-fundinum. Við viljum að G8 leiðtogarnir tryggi:
Að öll ríki samþykki og fari eftir Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna.

- Að við fáum tækifæri til að nýta rétt okkar til þátttöku í heiminum. Við viljum ekki bara vera hluti af framtíðinni, við erum líka nútíðin.
- Að þau standi við loforðin sem gefin voru á sérstöku barnaþingi Sameinuðu þjóðanna (e. UN Special Session on Children).
- Að stjórnvöld og samfélög allra landa útrými spillingu og fátækt.
- Að skuldir þróunarlandanna verði afnumdar um allan heim og að viðskipti verði réttlát. 
- Að stofnað verði svokölluð álitsgjafanefnd ungs fólks í samvinnu við G8. 

Við, börn og ungmenni á aldrinum 11 til 18 ára, erum fulltrúar milljóna barna um allan heim, og flytjum eftirfarandi tillögur til G8 leiðtoganna. Tillögurnar eru lýsandi fyrir það að ungt fólk vill réttlátari heim. Við viljum að ríki vinni saman að framþróun mannkyns og svo að framtíðin verði bjartari.

Þegar þessar tillögur eru gerðar þá setjum við trú okkar á þig – mundu að þú varst einu sinni barn – og vonum að skuldbinding þín sem einstaklingur og hluti af mannkyninu muni hafa áhrif á ákvarðanatökur þínar.

ALLAR ÞESSAR TILLÖGUR TENGJAST HVER ANNARRI OG LÍTA VERÐUR Á ÞÆR Í SAMHENGI, EKKI SEM EINANGRAÐ MÁLEFNI.

1. FÁTÆKT - ÚTRÝMT!!!
Leiðtogar G8-ríkjanna verða að útrýma fátækt núna.

2. MENNTUN - NÚNA!!!
G8-leiðtogarnir verða að tryggja ókeypis og góða menntun fyrir alla.

3. OFBELDI GEGN BÖRNUM – TÍMINN ER ÚTRUNNINN!!!
G8-leiðtogarnir verða að vernda börn með því að styðja við verkefni sem útrýma allar tegundir ofbeldis, sérstaklega innan fjölskyldunnar, í skólanum, á götunni, á vinnustaðnum, í samfélaginu, í fjölmiðlum, í stríðum og vopnuðum átökum.

4. ÞÁTTTAKA, LÝÐRÆÐI OG STJÓRNVÖLD – MEIRA OG MEIRA!!!
- G8-leiðtogarnir verða að tryggja að stofnaðar verði barnanefndir í hverju landi og skapa tækifæri fyrir börn til að taka þátt í ákvarðanatökum.
- G8-leiðtogarnir verða að tryggja að stjórnvöld standi við loforð sín, efli lýðræði, jafnrétti og taki tillit til sjónarmiða beggja kynja, fólks af mismunandi kynþætti, þjóðerni, aldri, með mismunandi trúarskoðanir og fólks með sérstakar þarfir.

5. HIV/ALNÆMI - ÚT!!!
- G8-leiðtogarnir verða að tryggja að alnæmislyf verði gerð aðgengileg fyrir alla. Fylgjast verður með því að þeim fjármunum sem varið er til HIV-verkefna nái til þeirra sem minnst mega sín.
- G8-leiðtogarnir verða að styðja við fræðslu-verkefni sem koma í veg fyrir HIV/alnæmi og mismunun gagnvart þeim sem eru smitaðir og aðstandendum þeirra. Smokkar ættu að vera ókeypis og aðgengilegir fyrir allt ungt fólk.

6. VINNANDI BÖRN – VINNIÐ Í ÞVÍ!!!
- G8-leiðtogarnir verða að styðja við verkefni sem tryggja vinnandi börnum og götubörnum vernd, menntun og heilsuvernd
- G8-leiðtogarnir verða að tryggja að lögum verði framfylgt sem ætlað er að útrýma vinnuþrælkun barna.
- G8-leiðtogarnir verða að styðja við og hlusta á hreyfingar og félög vinnandi barna.

7. HEILSUSAMLEGT UMHVERFI, VATN OG HREINLÆTI – NÓG FYRIR ALLA!!!
- G8-leiðtogarnir verða að tryggja að börn fái á taka þátt í að fylgjast með verndun náttúrunnar svo að henni verði skilað vel til næstu kynslóða.
- Allir G8-leiðtogarnir verða að taka upp Kyoto bókunina.
- G8-leiðtogarnir verða að styðja ríkisstjórnir til að koma upp hreinu drykkjarvatni og hreinlætisaðstöðu í alla skóla og samfélög.

8. HEILSA OG NÆRING – FÁUM ÞAÐ!!!
- Leiðtogar G8-ríkjanna verða að afnema skuldir þróunarlandanna og tryggja betri viðskiptahætti svo að hægt verði að veita fjármunum til heilsugæslu og næringaríkan mat svo að börn deyi ekki af sjúkdómum sem hægt hefði verið að koma í veg fyrir eins og malaríu og berklum, og svo að börn lifi heilsusamlegu lífi.
- G8 leiðtogarnir verða að hvetja til notkunar á öruggum og áhrifaríkum lyfjum.

Við höfum áhyggjur af nútíðinni og framtíðinni.
Við hugsum ekki bara um okkur sjálf.
Við hugsum um heiminn núna og á morgun.
Við viljum gera þennan heim búvænlegan, réttlátan og hamingjuríkan.

MEÐ ÞÍNUM STUÐNINGI,
GETUM VIÐ KOMIÐ Á BREYTINGUM NÚNA.
VINNUM SAMAN!