Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Ungmenni hafa áhrif á G8

Um þessar mundir fer fram fyrsti C8-fundur UNICEF í Dunblane, Skotlandi, en hann hófst 3. júlí og stendur til 5. júlí, rétt áður en leiðtogar G8 ríkjanna hittast. Á fundinum munu ungmenni, undir 18 ára, frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu, koma saman ásamt ungmennum frá nokkrum G8 ríkjum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi.

Ljóst er að ákvarðanirnar sem teknar verða á G8-fundinum munu hafa bein áhrif á líf barna um allan heim. UNICEF telur að börn og ungmenni skulu fá tækifæri til að hafa áhrif á þær ákvarðanir. C8-fundurinn mun veita þeim þetta tækifæri.

Af hverju viljum við ná fram breytingum?
• Af því þúsundir barnslífa eru í húfi. Þriðju hverju sekúndu deyr barn, 20 hverja mínútu, 1200 hvern klukkutíma, 29 þúsund á dag. Dag eftir dag. Hægt er að koma í veg fyrir dauðsföll þessara barna með einföldum hætti.
• Af því að næstum 11 milljónir barna deyja ár hvert af sjúkdómum sem hægt er að koma í veg fyrir.
• Af því að um 100 milljónir barna fá ekki tækifæri til að fara í skóla.
• Af því það eru 15 milljón börn sem eru munaðarlaus af völdum alnæmis.
• Af því 1 milljarður barna lifa í fátækt.
• Af því við getum ekki sætt okkur við þetta lengur.
• Af því þetta þarf ekki að vera svona.
Hvers vegna?
Ákvarðanirnar sem teknar verða á G8-fundinum munu hafa bein áhrif á líf barna um allan heim. UNICEF telur að börn og ungmenni skulu fá tækifæri til að hafa áhrif á þær ákvarðanir. C8-fundurinn (www.unicef.org.uk/c8) mun veita þeim þetta tækifæri.
Hvað viljum við gera?
Til að ná árangri verða leiðtogar G8 ríkjanna að einbeita sér að því að útrýma fátækt barna. Þeir verða að taka á málefnum barna sérstaklega í umræðum sínum. Til að fátækari samfélög megi dafna þurfa börn jafnrétti – afnema skuldir, stefnumörkun í viðskiptum og þróunarsamvinnu.

Hvað er C8?
C8 er fundur barna og ungmenna frá átta af fátækustu ríkjum í heimi og ungmennum frá G8 ríkjunum, sem UNICEF skipuleggur. Fundurinn verður haldinn áður en fundur leiðtoga G8 ríkjanna hefst, eða 3.-5. júlí. C8 er einstakur viðburður þar sem ungu fólki gefst tækifæri á láta raddir sínar heyrast og í kjölfar fundarins munu ungmennin afhenda niðurstöður fundar síns leiðtogum G8 ríkjanna. Þar verður vikið að málefnum sem ungmennin leggja til að G8 leiðtogarnir ræði.

Hvernig fer C8 fram?
Ungmenni frá átta af fátækustu ríkjum í heimi – Bútan, Kambódíu, Moldavíu, Jemen, Gíneu, Síerra-leone, Lesótó og Bólivíu munu koma saman ásamt ungmennum frá G8 ríkjunum – Rússlandi, Frakklandi, Ítalíu, Þýskalandi og Bretlandi. Ungmennin munu fjalla um málefni barna og ungmenna, ræða saman og setja saman yfirlýsingu sem afhent verður leiðtogum G8 ríkjanna.

Hvernig hafa þátttakendur í C8 verið valdir?
Þátttakendur voru valdir í gegnum UNICEF’s Adolescent Development and Participation Unit (ungmennadeild UNICEF). Staðlar voru hinir sömu fyrir fulltrúa frá þróunarlöndunum og G8-ríkjunum:
• Ungmenni skulu vera undir 18 ára.
• Ungmenni skulu vera með reynslu í ungmennastarfi í skóla sínum eða samfélagi.
• Allir þátttakendur skulu vera með reynslu af grasrótarstarfi í samfélagi sínu.
• Þátttakendur skulu hafa þekkingu á UNICEF og réttindum barna og hafa reynslu af því að tala á opinberum vettvangi og sjálfstraust í að tala fyrir framan áhorfendur og fjölmiðla.
Af hverju núna?
2005 er einstakt ár þar sem ríkisstjórnum G8-ríkjanna gefst tækifæri á að koma á alvöru breytingum í þróunarsamvinnu og stuðla að því að Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun verði náð. UNICEF vill setja málefni barna í fremstu línu og tryggja að rödd þeirri heyrist í umræðunum. C8 mun ná þessu fram með því að sameina börn frá fátækari ríkjum heims og gefa þeim vettvang til að ræða málin og tryggja að leiðtogar og almenningur um allan heim heyri raddir þeirra.
UNICEF hyggur á að læra af þessum fyrsta C8 fundi og gera hann að árlegum viðburði í tengslum við G8 fundina. Það þýðir að börn og ungmenni geta skorað á leiðtoga og fylgst með hvort málefnum þeirra sé fylgt eftir.

Hvaða málefni verða rædd?
C8 mun fókusera á þau málefni sem ungmennin velja og finnast mikilvæg. Árið 2005 er mikilvægt m.a. vegna G8 fundarins, Bretar taka við framkvæmdastjórn Evrópusambandsins og Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun verða tekin til endurskoðunar. Vegna þessa um C8 fundurinn í ár mun fjalla um eftirfarandi málefni:
• Þúsaldarmarkmið Sameinuðu þjóðanna um þróun. (Millennium Development Goals).
• Afríkuráðið (Africa Commission). Hvernig á að útrýma fátækt með niðurfellingu skulda, betri viðskiptum og þróunaraðstoð.
• Samvinna ríkja í þróunarmálum – viðskipti, þróunaraðstoð og niðurfelling skulda.
• Þemu:
-Menntun – menntun stúlkna, niðurfelling skólagjalda.
-Heilsa – bæta heilsukerfið og stoppa útbreiðslu sjúkdóma eins og malaríu.
-Börn og HIV/alnæmi.
-Fátækt.
-Hungur og næring.
-Misnotkun – barnaþrælkun, mansal, kynferðisleg misnotkun, stríð og átök, ofbeldi.

Bakgrunnur um þátttöku barna og ungmenna
Réttur barna til þátttöku endurspeglast í 12. gr. 1 Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna: „Aðildarríki skulu tryggja barni sem myndað getur eigin skoðanir rétt til að láta þær frjálslega í ljós í öllum málum sem það varða, og skal tekið réttmætt tillit til skoðana þess í samræmi við aldur þess og þroska.“
Síðan Barnasáttmálinn var samþykktur á Allsherjarþingi SÞ árið 1989 hafa hinir fullorðnu veitt skoðunum barna og ungmenna meiri athygli og virðingu. Ungmenni þurfa þó hvatningu til þátttöku og þeim þarf að vera gefinn vettvangur og tækifæri eins og C8 til að skiptast á skoðunum og ræða sín málefni. Ef við trúum því að börnin muni erfa heiminn því fyrr ættum við að leyfa þeim að taka þátt í ákvarðanatökuferlum svo þau læri að segja skoðun sína og vinna saman til að ná fram breytingum.