Bellamy kveður UNICEF eftir tíu ára setu í stól framkvæmdastjóra
Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF, lýkur tíu ára tímabili sínu sem framkvæmdastjóri Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, um næstu mánaðarmót. Árangur UNICEF í forystu Bellamy er ótvíræður. Hún hefur ekki bara lagt áherslu á að bjarga lífi barna, heldur einnig á að tryggja þeim góðan uppvöxt í vernduðu og barnvænu umhverfi.
„Að leiða UNICEF hefur verið mér mikill heiður og forréttindi,“ sagði Bellamy, sem kallaði stöðu sína oft „besta starf í heimi“. „Ég get ekki hugsað mér nokkuð starf sem er mikilvægara fyrir mannkynið en að bjarga lífi barna um allan heim og að tryggja að þau vaxi upp við góða heilsu, í virðingu og friði.“
Bellamy var skipuð framkvæmdastjóri UNICEF árið 1995 af þáverandi aðalritara Sameinuðu þjóðanna, Boutros Boutros-Gali. Hún var ráðin aftur til fimm ára af Kofi Annan árið 2000. Samkvæmt reglum Sameinuðu þjóðanna mega yfirmenn samtaka ekki sitja lengur en í tvö fimm ára tímabil.
Arftaki Bellamy sem framkvæmdastjóri UNICEF er Ann M. Veneman, en hún gegndi áður starfi landbúnaðarráðherra Bandaríkjanna. Veneman hefur störf í næstu viku.
Bellamy hélt áfram mikilvægri stefnu UNICEF í bólusetningum og næringu, en setti einnig málefni eins og vernd barna á odd alþjóðlegrar hjálparstarfsemi. Hún talaði fyrir réttindum og vernd barna sem orðið hafa fyrir kynferðislegri misnotkun eða vinnuþrælkun, sem lent hafa í mansali, fangelsi eða stríði, eða eru munaðarlaus. Hún var ein af þeim fyrstu sem töluðu opinberlega um kynferðislega misnotkun barna á ferðamannastöðum (child sex tourism), vinnuþrælkun barna og um mansal barna til Vesturlanda.
„Að vernda börn gegn ofbeldi er ekki bara siðferðisleg nauðsyn, heldur einnig grundvallaratriði til að ná megi langtímamarkmiðum í þróunaraðstoð,“ sagði Bellamy.
Í gegnum allt tímabil sitt sem framkvæmdastjóri UNICEF var Bellamy óhrædd við að ræða við leiðtoga sem hunsuðu það að tryggja öryggi og vernd barna. Bellamy ferðaðist m.a. til Súdan, Srí Lanka og Síerra Leone til að ýta á að barnahermenn skyldu látnir lausir og hún ræddi einnig við leiðtoga Talíbana í Afganistan um mikilvægi menntunar stúlkna.
Á síðustu tíu árum hefur heimurinn séð aukin átök og stríð og hefur Bellamy brugðist við þessu með því að búa UNICEF betur undir það að mæta neyðaraðstoðinni sem fylgir í kjölfar átaka. UNICEF spilaði lykilhlutverk í að koma börnum aftur í skóla í Afganistan, UNICEF fylgist með og mætir næringarþörf barna í Írak, ásamt því að sinna neyðaraðstoð, tryggja vernd og koma börnum aftur í skóla eftir hamfarirnar við Indlandshaf.
Bellamy gerði uppbyggingu skóla að lykilatriði í neyðaraðstoð og lagði þar með áherslu á mikilvægi þess að börn kæmust aftur í skólaumhverfi eins fljótt og hægt er eftir hamfarir eða átök. Slíkar aðgerðir miða að því að leyfa börnum að vera börn á ný og veitir þeim vinalegt og öruggt umhverfi í erfiðleika lífsins.
Bellamy lagði mikla áherslu á menntun allra barna, sér í lagi stúlkna, þar sem skólaganga er lykillinn að því að takast á við ógnir eins og HIV/alnæmi, misnotkun og fátækt. Í stjórnartíð Bellamy hefur UNICEF verið leiðandi samtök í því að fá jafn mikinn fjölda stúlkna í skóla eins og drengja, með þeim rökum að skólasókn stúlkna sé forsenda jákvæðra breytinga í samfélaginu og fyrir komandi kynslóðir.
„Þar sem konur eru helstu umönnunaraðilar barna um allan heim, er velferð þeirra forsenda velferðar barna,“ sagði Bellamy. „Þegar konur eru menntaðar og við góða heilsu, eru börn þeirra líklegri til að lifa af, ganga í skóla og vaxa upp til að verða nýtir þjóðfélagsþegnar. Það er vegna þessa sem menntun stúlkna og aukin mannréttindi kvenna eru miðlæg í starfsemi UNICEF.“
Áhersla UNICEF á menntun stúlkna endurspeglaði þá trú Bellamy að með því að setja réttindi barna í forvígi, væri ekki bara mögulegt að ráðast að rót vandamála eins og ungbarnadauða og sjúkdóma, heldur einnig að hafa langvarandi áhrif á næstu kynslóðir.
Bellamy segir að hún kveðji UNICEF meðvituð um það hve mikið verk er óunnið fyrir börn heimsins, sérstaklega þar sem þeim er nú ógnað af HIV/alnæmi, átökum og mikilli fátækt.
„Það er ómögulegt að klára það verk að vernda öll börn og tryggja þeim þau réttindi sem þau eiga skilið,“ sagði Bellamy. „Það er starf sem mun aldrei hætta að verða mikilvægt og áríðandi.“
UNICEF hefur gengið fjárhagslega mjög vel í tíð Bellamy og er með sterka innri stjórn. Í stjórnartíð hennar hefur fjárhagur UNICEF tvöfaldast frá um 800 milljónum króna árið 1994 til meira en 1.8 milljarðs króna árið 2004.
Árangur fyrir börn í tíð Carol Bellamy, framkvæmdastjóra UNICEF:
- 18% lækkun á tíðni ungbarnadauða síðan árið 1990, með lækkun á öllum svæðum nema í Sunnanverðri Afríku, þar sem HIV/alnæmi og átök hafa lagt heilsugæslu og félagslega kerfið í rúst.
- 99% fækkun á mænusóttartilfellum síðan árið 1988.
- 40% fækkun á mislingum síðan árið 1999.
- 50% fækkun á dauðsföllum vegna niðurgangs síðan árið 1990.
- Fleiri börn í skóla en nokkurn tíma áður.
- Breytingar á lögum og reglugerðum í tugum landa sem miða að því að vernda réttindi barna
Eftir starf sitt hjá UNICEF mun Bellamy taka stöðu forstjóra World Learning og forseta School for International Training. World Learning, sem staðsett eru í Vermont, eru fyrstu einkareknu samtökin í heiminum sem leggja áherslu á alþjóðlega menntun.