Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Dúkkurnar komnar norður á Akureyri!

Býflugan og blómið á Akureyri hefur tekið til sölu dúkkur sem kvenfélög um land allt hafa gert til styrktar stúlkum í Gíneu-Bissá. Nú geta Norðlendingar skoðað úrvalið og fest kaup í dúkkum sem gleðja bæði börn á Íslandi og í Gíneu-Bissá. Býflugan og blómið er staðsett á Glerárgötu 36. Hver dúkka kostar 5000 krónur og koma þær hvaðanæva að af landinu, enda hver og ein sérstök. Aðalflutningar hafa séð um að ferja dúkkurnar á milli staða UNICEF að kostnaðarlausu.