126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.
Þú ert hér:
Þróunaraðstoð á flóðbylgjusvæðunum hefur gengið vonum framar; ekki hefur orðið vart við sjúkdómsfaraldra, enginn dó úr hungri, börn eru farin aftur í skóla og fólk var haldið við góða heilsu og verndað.
Hjálparstofnanir hafa þó þurft að takast á við ýmis vandamál síðastliðið hálft ár. UNICEF hefur, ásamt samstarfsaðilum, sett fram fimm starfsreglur sem nú er unnið eftir í langtíma þróunaraðstoð:
1. Betri uppbygging. Þar sem mögulegt er munum við aðstoða við að gera heilsugæslu og menntaþjónustu betri en hún var fyrir flóðbylgjuna.
2. Bæta aðstöðu landanna sjálfra til að takast á við vandamál sem steðja að löndunum við Indlandshaf. Við höfum tækifæri til að koma af stað verkefnum til að koma í veg fyrir vandamál sem hafa steðjað lengi að mörgum þeirra landa sem lentu í flóðbylgjunni, eins og mansal, lélegt aðgengi að vatni og útbreidd vannæring.
3. Forðast að búa til mismunun. Við erum skuldbundin því að aðstoða fólk með þeim hætti að það skapi ekki spennu milli þeirra svæða sem fá aðstoð vegna flóðbylgjunnar og þeirra sem ekki lentu í flóðbylgunni.
4. Að hjálpa fólki og ríkisstjórnum sem urðu beint og óbeint fyrir áhrifum af völdum hamfaranna. Það eru margir sem misstu ekki heimili sín, en hafa samt sem áður orðið fyrir óbeinum áhrifum vegna flóðbylgjunnar.
5. Gegnsæi og áreiðanleiki. UNICEF mun koma á verkefnum og veita aðstoð með algjöru gegnsæi og birta niðurstöður og árangur, sem og það sem miður fer.