á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Fleiri Íslendingar hafa bæst í hóp heimsforeldra eftir söfnunarþáttinn hjá Fólk með Sirrý í gær, en skráningin gekk framar vonum. Tvær endursýningar verða á þættinum, í dag fimmtudag kl. 17:20 og á sunnudag kl. 15:10. Enn er opið fyrir söfnunarsímann 5 62 62 62.
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, segir mikilvægt að hafa fengið öfluga styrkaraðila að þættinum. „Styrkaraðilar þáttarins voru Actavis, Landbankinn og Vátryggingafélag Íslands. Iceland Express útvegaði flugfargjöld og símsvörunarfyrirtækið Skúlason ehf. lagði til aðstöðu og starfsfólk. SkjárEinn hefur einnig lagt til ómælda vinnu og tíma starfsfólks síns í þennan þátt og það var mjög ánægjulegt að sjá hve margir þar og annars staðar voru tilbúnir til að leggja góðu málefni lið.“
Söfnunarþátturinn hjá Sirrý gekk framar vonum og segir Stefán að greinilegt sé að Íslendingar hafi tekið vel í heimsforeldraátakið, sem þó hvergi nærri sé búið. „Sjálfboðaliðarnir sem svöruðu í símann segja okkur líka að fólkið sem hringdi hafi verið svo jákvætt og tilbúið að leggja sitt af mörkum.“
Ekki verður ljóst fyrr en í næstu viku hve margir heimsforeldrar hafa bæst í hópinn. Fólk er enn að hringja og búast má við að miklu fleiri bætist í hópinn.
Heimsforeldrar eru öflugt stuðningsnet fyrir börn sem greiða mánaðarlega fjárhæð til styrktar verkefnum UNICEF. Heimsforeldrar styðja ekki eitt barn, heldur rennur styrkurinn til uppbyggingar verkefna sem gagnast mörgum börnum, eins og til dæmis að byggja skóla, bólusetja, veita hreint vatn, heilsugæslu og umönnun, koma í veg fyrir vinnuþrælkun og misnotkun barna. UNICEF sinnir bæði langtíma þróunaraðstoð og neyðarhjálp.
Verkefnin eru mörg og það er vegna skuldbindingar heimsforeldra sem að börn um allan heim geta notið betra lífs.