Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Ann Veneman tekur við af Carol Bellamy í maí 2005

Ann Veneman, fráfarandi landbúnaðarherra Bandaríkjanna, var á dögunum útnefnd af Kofi Annan, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, sem næsti framkvæmdastjóri UNICEF – Barnahjálpar SÞ. Veneman mun taka við af Carol Bellamy, sem nú hefur gegnt stöðu framkvæmdarstjóra UNICEF í tíu ár, en samkvæmt stefnu Sameinuðu þjóðanna geta forstöðumenn stofnana SÞ ekki gegnt stöðu sinni lengur en til tveggja fimm ára kjörtímabila í senn.

„Hefð hefur skapast fyrir hnökralausum framkvæmdastjóraskiptum innan UNICEF,” var haft eftir Bellamy. „Mér er heiður að því að tryggja að þessi skipti verði jafn árangursrík.”

UNICEF sendir Ann Veneman hamingjuóskir í tilefni þess að hún var útnefnd sem næsti framkvæmdastjóri UNICEF
„Við hér hjá UNICEF bjóðum Ann Veneman velkomna og við hlökkum til að vinna með henni að því að bæta líf barna út um allan heim,” sagði aðstoðarframkvæmdastjóri UNICEF Kul Gautam sem starfað hefur með UNICEF í 32 ár. „Reynsla hennar í opinbera geiranum og í alþjóðasamfélaginu mun nýtast henni vel í starfi sínu hjá UNICEF.”
Ann Veneman mun verða fimmti framkvæmdastjóri UNICEF og verður jafnframt fimmti Bandaríkjamaðurinn til þess að gegna embættinu síðan UNICEF var stofnað árið 1946.

Ann Veneman er með B.A. gráðu í stjórnmálafræði og mastersgráðu í opinberri stefnumótun frá Berkeley, ásamt því að vera með doktorsgráðu í lögfræði frá Kaliforníuháskóla. Veneman hefur 20 ára reynslu af starfi í landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna.