árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
UNICEF fagnaði í dag nýjum framlögum frá Sjóði Bill og Melindu Gates og ríkisstjórn Noregs til hnattrænna bólusetningarverkefna, en framlögin nema yfir 1 milljarði Bandaríkjadala sem deilist yfir tíu ára tímabil.
UNICEF sem er leiðandi í bólusetningum barna, fagnaði þessari framtíðarskuldbindingu við bólusetningar en slík skuldbinding mun tryggja áframhaldandi framboð nauðsynlegra bóluefna.
„Framlag þetta er stórkostleg gjöf til barna. Við vonum að fleiri fylgi dæmi Gates-sjóðsins og Noregs og styðji bólusetningarverkefni með langtímaframlögum,” sagði framkvæmdastjóri UNICEF Carol Bellamy. „Þó að þessum framlögum sé að sjálfsögðu veitt af mikilli gjafmildi og framsýn þá er frekari fjárframlaga þarfnast til þess að mæta hinni hnattrænu eftirspurn eftir bóluefnum fyrir börn.”
Bellamy tók fram að framlögin yrðu sérstaklega nýtt til þess að kynna ný afbrigði bóluefna fyrir börn í hinum 72 fátækustu ríkjum heimsins. Þessi nýju bóluefni, eins og til dæmis Hib, eru oftar en ekki dýrari en hin hefðbundnu bóluefni eins og bóluefni gegn mislingum. Framlögin frá Gates-sjóðnum og norsku ríkisstjórninni munu gera það kleift að kynna hin nýju bóluefni smátt og smátt fyrir börnum þróunarlandanna.
„Bólusetningar eru aðgerð sem fólk tekur að nokkru leyti sem gefna nú á dögum, en bólusetningar eru þó það svið innan heilsugæslunnar sem tekur hvað örustum breytingum og er í stöðugri þróun,” segir Bellamy. „Alþjóðlegar fjárfestingar skipta sköpum í því að gera þróunarlöndum kleift að njóta góðs af þessari öru þróun um leið og almennum bólusetningarverkefnum landanna er haldið áfram.