Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Baugur Group, FL Group og Fons gefa 135 milljónir til menntaverkefnis í Gíneu-Bissá

Fyrirtækin Baugur Group, FL Group og Fons skrifuðu í morgun undir stærsta styrktarsamning fyrirtækja sem gerður hefur verið í þágu góðgerðarmála á Íslandi. Styrkurinn hljóðar upp á 135 milljónir króna og munu nær 100 þúsund börn í Gíneu-Bissá njóta góðs af styrknum, auk kennara, skóla og samfélagsins alls. Sir Roger Moore og kona hans, Lady Kristina Moore, voru viðstödd undirritunina, auk Yolanda Correia frá UNICEF í Gíneu-Bissá.

Moore sagði við þetta tækifæri að í Biblíunni segði að betra væri að gefa en þiggja, og því hlyti herramönnunum sem nú skrifuðu undir styrktarsamninginn að líða vel. Hann bætti þó við að í sumum tilvikum væri betra að þiggja, sérstaklega nú þegar svo mörg börn munu njóta góðs af stuðningnum. Correia þakkaði Íslendingum fyrir stuðning þeirra við UNICEF og sagði að hverri krónu af þessu fjárframlagi yrði vel varið í hennar landi.

Verkefnið í Gíneu-Bissá mun veita 24 þúsund börnum tækifæri á að sækja skóla næstu fjögur árin og þar með breyta framtíð þeirra. Gínea-Bissá er eitt fátækasta land í heimi og kemur styrkurinn til með að vera mikil lyftistöng fyrir landið í heild.

Ákveðið var að undirrita samningana á fullveldisdegi okkar Íslendinga, 1. desember, til að vekja athygli á þeim jákvæðu framförum sem orðið hafa á Íslandi frá því þjóðin fékk fullveldi. Ísland hefur á tiltölulega skömmum tíma vaxið úr örbyrgð í velsæld og því ber að fagna. En um leið höfum við tækifæri til að styrkja aðra sem búa við sára fátækt.

UNICEF Ísland fagnar þessum rausnarlega stuðningi enda sýnir hann með hvaða hætti íslensk fyrirtæki geta tekið þátt í þróunarsamvinnu og hvernig fyrirtæki geta haft áhrif á líf barna sem eiga um sárt að binda.