UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Fimmtudaginn, 8. sept., mun UNICEF Ísland bjóða börnum og fullorðnum, gestum og gangandi, að bragða á „Uji“, allsérstökum graut sem veittur er vannærðum börnum í Afríku og víðar. Uppákoman er í tengslum við söfnunarþátt fyrir UNICEF hjá Sirrý á SkjáEinum næstkomandi miðvikudag. Við hvetjum alla til að mæta á Ægissíðuna!!
Fulltrúar Barnahjálparinnar á Íslandi og Sigríður Arnardóttir á SkjáEinum heimsóttu börn í Kenía sem höfðu notið góðs af Uji-verkefni UNICEF. Tilgangurinn er nú leyfa íslenskum börnum að bragða á sama mat og margir jafnaldrar þeirra í Afríku þurfa að lifa á. Sirrý mun, ásamt öðrum þekktum einstaklingum, litríkum konum frá Kenía og fulltrúum UNICEF Ísland, bjóða leikskólakrökkum frá Sæbóli, og gestum og gangandi að smakka á grautnum frá klukkan 12:30 til 13:00 í grásleppuskúrunum við Ægissíðu (á móti húsi númer 64).
Víða í Afríku þjást börn vegna vannæringar og vítamínskorts sem hamlar andlegum og líkamlegum þroska þeirra. Nóg er til af mat í heiminum og sem betur fer er vannæring barna ekki vandamál sem við á Íslandi þekkjum of vel. Því miður er ekki hægt að segja hið sama um mörg börn Afríku. UNICEF veitir vannærðum börnum næringu með því að veita þeim graut og hefur komið á fót matargjöfum í skóla (e. School-feeding-program), sem hefur reynst mjög vel. Markmiðið með því að veita grautinn í leikskólum og skólum í Afríku er ekki bara að aðstoða vannærð börn, heldur einnig að hvetja þau til að sækja skóla.
Fyrsti þáttur Fólks með Sirrý í vetur verður sérstaklega tileinkaður UNICEF og hinum fjölmörgu íslensku heimsforeldrum í tveggja tíma löngum söfnunarþætti miðvikudaginn 14. september næstkomandi, kl. 21:00-23:00. Þá getur fólk lagt sitt af mörkum með því að gerast heimsforeldrar í síma 5 62 62 62.