English version

Heimsforeldrar í Fólki með Sirrý

Einstaklingar geta nú lagt sitt af mörkum til að bæta líf barna um allan heim með því að gerast heimsforeldrar. Hægt er að skrá sig í söfnunarsímann 5 62 62 62.

Heimsforeldraátak UNICEF nær hápunkti næstkomandi miðvikudag, 14. september, í tveggja klukkustunda löngum söfnunarþætti hjá Sirrý á SkjáEinum, kl. 21:00-23:00. Í söfnunarþættinum verður sýnt fram á hve miklum árangri heimsforeldrar hafa náð og hvað hvert framlag skiptir miklu máli.

Íslenskum heimsforeldrum hefur fjölgað ört á síðustu mánuðum og í þættinum geta þeir séð ljóslifandi dæmi um það hvernig framlögum þeirra er varið.

Sirrý heimsótti verkefni UNICEF og heimsforeldra í Kenía og í þættinum kynnumst við börnum sem eiga um sárt að binda eða hafa ekki sömu tækifæri og börn hér á landi hafa.

Við kynnumst Said, 11 ára, og Meswaleh, 14 ára, sem misst hafa foreldra sína af völdum alnæmis en tekist hefur að veita þeim betra líf í gegnum verkefni UNICEF. Einnig heyrum við átakanlega sögu Michael og bróður hans sem búa í fátækrahverfinu Kibera í Naíróbí og kynnumst Kevin, hugrökkum HIV-smituðum strák, sem gengur í Ayala-grunnskólann í Nairóbí.

Þátturinn verður stútfullur af áhugaverðu efni frá Kenía, en einnig mun vera nóg af gríni og glensi því það er alltaf gaman að geta haft áhrif og breytt lífi barna til batnaðar. Það ætlum við að gera þann 14. september og skorum við á alla Íslendinga að vera með!!