Vissir þú að...

yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.

Þú ert hér:  

Neyðarhjálp í Indónesíu

UNICEF tekur nú þátt í neyðaraðgerðum, ásamt öðrum hjálparsamtökum innan Sameinuðu þjóðanna, í kjölfar jarðskjálftans við strendur Indónesíu í gær. UNICEF mun dreifa hjálpargögnum til skjálftasvæðanna svo sem segldúkum, tjöldum, vatnstönkum og sjúkrakössum, sem hannaðir eru fyrir slíkar aðstæður. Enn er erfitt að segja hve margir hafa látist en talið er að fórnarlömbin séu milli 1000 og 2000 manns.

Fulltrúar UNICEF hafa, ásamt teymum frá öðrum hjálparstofnunum Sameinuðu þjóðanna, flogið yfir svæðin til að meta skemmdir og út frá því verður hægt að gera áætlun um það hvernig best verði staðið að hjálparstarfi á svæðinu. Samgöngur hafa skemmst og því mun reynast erfitt að senda hjálpargögn til svæðisins.

Aðstæður á skjálftasvæðunum
Jarðskjálfti upp á 8,7 stig á Richter reið yfir Súmötru á Indónesíu í gærkvöld, 28. mars. Jarðskjálftinn átti upptök sín í Indlandshafi nærri Nias- og Similue-eyjum, sem liggja vestan við Norður-Súmötru (sjá kort hér að ofan). Jarðskjálftans varð þó vart alla leið til Jakarta og Bangkok.

Fólk í Banda Aceh-héraði og nærliggjandi samfélögum á vesturströnd eyjunnar varð skelfingu lostið, sér í lagi eftir að varað var við annarri flóðbylgju við lönd Indlandshafs. Á Nias hljóp fólk upp í fjöll og hæðir þar sem þau dvelja enn. Flóðbylgja myndaðist ekki við þessa jarðskjálfta og voru allar slíkar viðvaranir fljótt kallaðar til baka.

Tala fórnarlamba skjálftanna er frá 1000 og upp í 2000, en afar erfitt er að segja til um það á þessu stigi málsins. Ekki hefur verið áætlað um tölu særðra eða týndra.

Eyðileggingin í kjölfar skjálftans virðist einskorðast nokkuð við eyjurnar tvær Nias og Similue, en lítið er um skemmdir á Súmötru sjálfri. Samkvæmt fyrstu athugun telur UNICEF að í höfuðborg Nias, Gunungsitoli, séu 10% húsanna eyðilögð og 20% mjög skemmd, aðallega múrsteina- og steypuhús. En líklegt er að skemmdirnar séu mun meiri.

Jarðskjálftinn hefur haft mikil áhrif á samfélög eyjanna. Símasamband er ekkert, flugvöllurinn í Gunungsitoli hefur verið lokað nema fyrir smærri vélum, og vegurinn frá flugvellinum að borginni hefur verið lokað. Höfnin í Gunungsitoli er þó óskemmd. Vegurinn milli Medan og Meulaboh hefur einnig verið lokaður, en indónesíski herinn vonast þó til að hann verði lagaður innan 48 stunda.

Viðbrögð UNICEF
Fulltrúi neyðaraðstoðar UNICEF á svæðinu, Eduoard Beigbeder, var einn þeirra sem skoðaði skjálftasvæðin í Gunungsitoli í dag, og segir hann að nausynlegt sé að senda sjúkragögn, plastdúka, mataráhöld, mat, vatn og vatnstanka á svæðið hið fyrsta.

Fulltrúar UNICEF í Jakarta og Banda Aceh-héraði eiga nóg af birgðum og hafa brugðist við þessu og munu senda gögnin á svæðin. Hjálpargögnin verða flutt með bílum til Sibolga-höfn á Súmötru og þaðan beint til Nias um leið og vegir þar verða færir að nýju. Einnig mun sérfræðingur í vatns-og hreinlætisverkefnum vera sendur til Nias á morgun til að meta aðstæður. Er það nauðsynlegt til að koma megi í veg fyrir algenga sjúkdóma sem skapast geta við slíkar aðstæður.

Flugsveitir Sameinuðu þjóðanna munu koma upp stöð í Sibolga þar sem tvær MI8 þyrlur munu geta flogið til og frá Nias frá og með morgundeginum.

Ríkisstjóri Norður-Súmötru, Rizal Nurdin, hefur kallað eftir aðstoð alþjóðlegra hjálparstofnana og sagt að mikil þörf sé á sjúkragögnum, læknum og hjúkrunarfólki. Hann hefur óskað eftir hjálp frá stjórnvöldum í Singapore og hefur beðið spænska sjúkrahússkipið um að snúa við, en það var á leiðinni heim eftir að hafa þjónað í Aceh.

UNICEF sér um allar hliðar neyðar- og þróunaraðstoð og hefur þarfir barna að leiðarljósi í öllu sínu starfi.