yfir helming dauðsfalla barna má rekja til vannæringar. Fyrir 1000 krónur getur þú greitt fyrir 16 poka af næringaríkri fæðu fyrir vannærð börn.
Þú ert hér:
Sérfræðingar UNICEF í neyðaraðstoð eru komnir til jarðskjálftasvæðisins í Zarand, í suðvesturhluta Íran, til að meta eyðilegginguna og hvort að þörf sé fyrir neyðaraðstoð. Tala látinna er kominn upp í 400 og hafa um 30 þúsund manns orðið fyrir einhvers konar áhrifum af völdum skjálftanna.
Að minnsta 90% þriggja þorpa eyðilögðust. Kari Egge, yfirmaður UNICEF í Íran, sem var á ferð nálægt skjálftasvæðunum þegar hamfarirnar áttu sér stað, fór strax á svæðið. Hún segir að heilt þorp hafi nánast þurrkast út. Hún segir forgangsverkefni þeirra vera að meta þarfir fólks á svæðinu. Verið er að dreifa tjöldum, mat og hreinu vatni. Írönsk yfirvöld hafa þó ekki sent út neina opinbera ósk um alþjóðlega neyðaraðstoð en UNICEF er í viðbragðsstöðu.