Vissir þú að...

UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.

Þú ert hér:  

Sir Roger Moore kíkir á jólakortasölu UNICEF

Sir Roger Moore mun kíkja á jólakortasölu UNICEF á morgun, laugardag, að Laugavegi 42, 2. hæð, kl. 14:00. UNICEF hefur selt jólakort í nær 60 ár eða nánast alveg frá stofnun samtakanna. Sala á þeim var ein fyrsta fjáröflun meðal almennings sem UNICEF fór í og er enn stór tekjulind samtakanna. Kortin hafa verið seld á Íslandi af Félagi Íslenskra háskólakvenna í sjálfboðastarfi í nær 50 ár.