árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.
Þú ert hér:
Þúsundir fórnarlamba fellibylsins Katrínar við Mexíkó-flóa búa nú við slæmar aðstæður þar sem mikil þörf er á hreinu vatni og mat. Frá og með síðastliðnum föstudegi var talið að 1,2 milljónir manna væru heimilislausar og allt að þriðjungur eða fjórðungur þeirra eru börn undir 16 ára aldri.
UNICEF býr yfir mikilli reynslu í áfallahjálp barna sem hafa orðið fyrir náttúruhamförum og bauðst til að veita sérfræðiþekkingu á því sviði. Auk þess sendi UNICEF lista til yfirvalda neyðaraðgerða Bandaríkjanna yfir þau neyðargögn sem hægt væri að senda á vettvang án mikils fyrirvara. Hefur bandaríska ríkisstjórnin óskað eftir stuðningi SÞ og búast má við að UNICEF taki þátt í neyðaraðgerðunum með einhverjum hætti.
UNICEF hefur áhyggjur af því að mörg börn, aðallega þau fátækari og varnarlausari, séu og munu verða fyrir miklum áhrifum af hamförunum. Smábörn, 6 mánaða til 2 ára, eru sérstaklega í hættu ef þeim er ekki veitt hreint vatn og eru börn viðkvæm fyrir mislingum og niðurgangi sem getur leitt til dauða ef ekkert er að gert.
Fólk þarf að flýja heimili sín og eru send í tímabundin skýli í nágrannaríkjum. Spítalar eru yfirfullir og í sumum tilfellum er börn og ungmenni flutt með flugvél frá foreldrum sínum til að geta fengið viðunandi sjúkrahúsþjónustu.
Byggt á reynslu UNICEF eftir flóðin við Indlandshaf og víðar skipti mestu á fyrstu dögum neyðaraðgerða að bjarga lífum barna og veita þeim vatn, heilsugæslu, næringu og skjól. Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF sagði að það yrði sennilega forgangsatriði næstu daga og jafnvel vikur að veita slíka aðstoð.
Næsta skref yrði að koma börnum aftur í skóla eða í tímabundnar kennslustofur til að tryggja að þau nái sér andlega. Veneman hrósaði nágrannaríkjunum sem þegar höfðu opnað skóla sína fyrir fórnarlömb hamfaranna. Katrín fór yfir rétt við byrjun skólaárs svo að huga verður að þörfum barnanna að þessu leiti. Samkvæmt fréttavef BBC þarf að koma um eða yfir 200 þúsund börnum aftur í skóla.
Bandaríkjastjórn og fleiri hafa farið varlega í það að áætla um tölu látinna og heimilislausra. Enginn getur sagt til um það enn. UNICEF telur þó að tíu þúsundir barna muni verða heimilislaus næstu vikurnar og sum munu jafnvel vera í burtu frá heimili sínu svo mánuðum skiptir. Áfallahjálp er mikilvæg í þessum aðstæðum. UNICEF hefur boðist til að veita sérfræðiþekkingu á því sviði.
Ann M. Veneman framkvæmdastjóri UNICEF hefur vottað samúð sína til fjölskyldna sem hafa misst heimili sitt, lifibrauð og ástvini vegna fellibylsins Katrinu og hvetur þau til að gefa ekki upp vonina.
„Samúð okkar er öll hjá fórnarlömbum þessa hörmulega atburðar, einkum hjá börnunum,“ sagði Veneman. „Allir þeir sem upplifa nú missi og vonleysi ættu að vita að heimurinn stendur með þeim.“
Dan Toole, yfirmaður neyðaraðgerða UNICEF, hefur mikla reynslu af neyðarhjálp eftir náttúruhamfarir og hvatti hann fólk til að gleyma því ekki að þetta fólk hefði orðið fyrir sálrænu áfalli. „Við verðum að hvetja kennara og ráðgjafa til að hjálpa börnunum,“ sagði Toole. Rauði krossinn, Hjálpræðisherinn og fleiri góðgerðarsamtök í Bandaríkjunum hafa unnið að því að veita fólki fyrstu hjálp, heilsugæslu, vatn og skjól.
Jan Egeland, yfirmaður neyðaraðgerða Sameinuðu þjóðanna, bauð bandaríkjastjórn aðstoð SÞ í bréfi sem sent var til sendiherra Bandaríkjanna hjá SÞ, John Bolton, fyrir helgi. Nú er ljóst að bandaríkjastjórn hefur þáð boð um aðstoð frá SÞ, Evrópusambandinu og Nato.