UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Í dag, þriðjudag, hófst landssöfnun þriggja sjónvarpsstöðva, þriggja verslunarmiðstöðva, níu útvarpsstöðva, þriggja dagblaða, listamanna, fyrirtækja og almennings til hjálpar þeim sem lifðu af hamfarirnar í Asíu. Söfnunarfénu verja fimm mannúðarsamtök; Barnaheill - Save the Children, Hjálparstarf kirkjunnar, Rauði kross Íslands, SOS barnaþorp og UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Fjármunum verður varið til neyðaraðstoðar nú, og uppbyggingar á næstu árum. Frú Vigdís Finnbogadóttir er verndari söfnunarinnar. Aldrei fyrr hafa svo margir aðilar á Íslandi tekið höndum saman um neyðarhjálp til útlanda.
Söfnunin hefst í dag, þriðjudaginn 11. janúar og nær hámarki með sameiginlegri beinni útsendingu Ríkissjónvarpsins, Stöðvar 2 og Skjás eins laugardagskvöldið 15. janúar.
Gefst landsmönnum kostur á að hringja í söfnunarsíma alla þessa viku. Framlög eru skuldfærð á símreikning handhafa.
Söfnunarsímanúmerin eru:
901 1000 sem gefur 1.000 kr.
901 3000 sem gefur 3.000 kr.
901 5000 sem gefur 5.000 kr.
Á föstudag og laugardag verður skemmtidagskrá í Kringlunni, Smáralind og Glerártorgi, Akureyri. Hún stendur frá kl. 14-18 á föstudag og 12-18 á laugardag. Þá ganga sjálfboðaliðar um þessa daga og safna í bauka.
Á laugardag munu þekktir einstaklingar í samfélaginu sitja við símann frá kl. 14-21:30 og taka við stærri framlögum. Númerið er 755 5000.
UNICEF hvetur einstaklinga og fyrirtæki til að leggja sitt af mörkum til söfnunarátaksins.