á hverjum degi smitast yfir 1150 börn undir 15 ára aldri af HIV. Taktu þátt í verkefnum UNICEF til að koma í veg fyrir fleiri smit.
Þú ert hér:
Baugur Group, Sirkus og UNICEF á Íslandi verða í samstarfi í tengslum við Live8-útsendinguna hér á landi 2. júlí nk. Á meðan fólk um allan heim safnast saman til að láta sig misskiptingu heimsins varða, eru Íslendingar hvattir til að gerast heimsforeldrar og þannig hafa áhrif á líf barna sem hafa ekki sama aðgang að lífsgæðum og við.
UNICEF Ísland hefur hafið sýningu blaðaauglýsinga og sjónvarpsauglýsinga með þeim Evu Maríu Jónsdóttur og Hilmi Snæ Guðnasyni þar sem þau skora á aðra að slást í stóran hóp heimsforeldra með því að hringja í símanúmerið 5 62 62 62. Pegasus gerði auglýsingarnar og Baugur Group styrkir allar birtingar.
Af hverju Live8 og UNICEF?
Stór hluti þeirra sem lifa í fátækt eru börn og þau eiga ekki að þurfa að vinna til að komast upp úr fátæktinni. Fátækt getur leitt til vannæringar, sjúkdóma og dregið úr andlegum og líkamlegum þroska barna. Hún hefur áhrif á tækifæri barna til menntunar og heilsugæslu og getur leitt til þess að börn séu misnotuð í vinnuþrælkun og stríðum.
Sem stærstu barnahjálparsamtök í heimi hefur UNICEF unnið að því markmiði að draga úr fátækt og afleiðingum hennar í nær 60 ár. Öll börn eiga að fá stuðning, umhyggju og vernd. Með samstarfi UNICEF, Sirkus og Baugs Group eru Íslendingar hvattir til að skrá sig sem heimsforeldrar og veita bágstöddum börnum í Afríku og víðar í heiminum hjálparhönd.
Ef iðnríkjunum öllum, þ.á.m. Íslandi, tekst að draga verulega úr fátækt í heiminum, mun tíðni ungbarnadauða lækka, hægt verður að koma í veg fyrir meiri skaða af völdum HIV/alnæmis, og veita börnum menntun, mat og grunnheilsugæslu. Þetta eiga að vera mikilvægustu markmið okkar allra.