English version

Með sól í hjarta og söng á vörum

Þessar ungu stúlkur, Bergþóra Björg, Þorbjörg Eva og Elva Dögg, eiga heima á Raufarhöfn. Í tilefni af sumarkomunni gengu þær í hús á Raufarhöfn og sungu til styrktar UNICEF - Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna. Þær söfnuðu 2.616 krónum.

Framlag þeirra Bergþóru, Þorbjargar og Elvu er kærkominn stuðningur við börn sem eiga um sárt að binda í heiminum. UNICEF er sjálfstæð stofnun og teystir eingöngu á frjáls framlög. Við leggjum áherslu á að fjárstuðningurinn skili sér beint til þeirra barna sem á honum þurfa að halda. Við kunnum stúlkunum bestu þakkir fyrir frábært framtak.