Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Upphaf skólaárs í Nepal

UNICEF vill tryggja öryggi barna í skólastofum í Nepal nú þegar nýtt skólaár er að hefjast þar í landi. Nýtt skólaár á að vera tækifæri til að tryggja það að ofbeldi og ótti verði ekki hluti af skólanáminu, segir fulltrúi UNICEF í Suður-Asíu.

Skólinn í Nepal byrjar 15. apríl og segir Cecilia Lotse, yfirmaður UNICEF í Suður-Asíu, að fyrsti skóladagurinn eigi að vera góður dagur fyrir fjölskyldur og börn. Foreldrarnir voni að skólinn hjálpi börnum þeirra að lesa, skrifa og reikna eða í stuttu máli leggi grunn fyrir framtíð þeirra.

Fyrsti skóladagurinn er óttablandinn í hugum margra barna í heiminum, en í Nepal hafa börn ærna ástæðu til að óttast. Skólar, kennarar og nemar hafa verið fórnarlömb átakanna í Nepal síðastliðin níu ár.

Skólar á átakasvæðum hafa verið gerðir að vígvelli, sprengdir upp, notaðir fyrir pólitíska fundi, og þar fram eftir götunum. Orðið hefur vart við jarðsprengjur í og við skóla og leiksvæði.

Þeir skólar sem hafa opið hafa ekki getað starfað eðlilega. Börn ljúka ekki nema því sem samsvarar einni önn eftir eitt skólaár. Bendir UNICEF á að þetta sé sérstaklega erfitt fyrir yngstu börnin þar sem erfiðara er fyrir þau að taka upp skólabækurnar með löngu millibili þar sem þau eru að læra undirstöður lesturs. Tíðar truflanir eru einfaldlega of erfiðar.

Samkvæmt UNICEF...
• Er Nepal að fara aftur hvað varðar menntun miðað við önnur nágrannaríki sín í Suður-Asíu.
• Áætlanir sem miða að því að bæta skólakerfið er ógnað af átökum í landinu.
• Meira en hálf milljón barna fær enga menntun, þ.e. eitt af hverjum fimm börnum á aldirnum 6 til 10 ára er ekki í skóla.
• Meirihluti þessa barna eru stúlkur eða börn úr minnihlutahópum.