UNICEF er á svæðinu fyrir, á meðan og eftir að neyð skellur á. Sem heimsforeldri ert þú með okkur allan tímann.
Þú ert hér:
Með fjármagni frá stjórnvöldum og einstaklingum hvaðanæva að úr heiminum hefur UNICEF komið upp kornbönkum til þess að útvega vikulega dreifingarskammta af korni. UNICEF sér einnig um að bólusetja börn og tryggja þeim grunnheilsugæslu.
„Ég kom hingað í dag til þess að ná í vikulegan skammt af hirsi fyrir fjölskylduna,” sagði hin 17 ára gamla Rahila Ibrahim. „Litli sonur minn fær líka bólusetningar.” Eins og mörg börn í þorpinu sínu hefur sonur Rahilu aldrei verið bólusettur.
„Heilbrigðisástand kvenna og barna í Níger er afar tvísýnt,” segir verkefnastjóri heilbrigðis og næringar hjá UNICEF, Dr. Daouda Alfari Dagada. „Ég myndi segja að tveir þriðju barna í Níger þjáist af vannæringu. Konur á meðgöngu eru einnig vannærðar. Margar þjást af blóðleysi, sem eykur hættuna á erfiðri meðgöngu og að eitthvað fari úrskeiðis í fæðingunni.”
Á þeim dögum þar sem korninu er útbýtt og börn bólusett er tækifærið einnig nýtt til þess að skrá þau börn sem aldrei hafa fengið fæðingarvottorð.
Aðgerðir UNICEF
UNICEF í Níger hefur, ásamt samstarfsaðilum sínum, útvegað meira en 41 tonn af næringarríkri mjólk og 190 tonn af UNIMIX – næringarríkum graut sem auðvelt er fyrir vannærð börn að melta. Þessum vörum hefur verið dreift til barna um allt landið.
Í samstarfi við Matvælaáætlun Sameinuðu þjóðanna (WFP) hafa 187 tonnum af korn- og sojablöndu og 614 tonnum af korni verið dreift til 62 þorpa sem illa urðu úti í uppskerubrestinum. Þessi sending mun ná til 200.000 einstaklinga, þar af 40.000 barna undir fimm ára aldri. Auk þessa, munu 900 tonnum af korni vera dreift til annarra 90 þorpa og útveguð verða 6 tonn af kartöfluútsæði og korn- og hveitifræjum til þessara sömu þorpa.
Til þess að tryggja stöðu innlendra samfélaga styður UNICEF við uppbyggingu kornbanka og þjálfun á innlendum heilbrigðisstarfsmönnum. Einnig hefur UNICEF staðið fyrir fræðslu um næringu og hvernig bregðast á við skorti á matvælum.
Vel er fylgst með matvælaástandinu í nágrannalöndunum, þar á meðal Nígeríu, Malí og Búrkína Fasó, en enn er hætta á að þar geti skapast hættuástand.