Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Börn í Níger í hættu

Hungur og vannæring ógna nú lífi 3,6 milljóna manna í Níger, meðal þeirra eru 800.000 börn undir fimm ára aldri. UNICEF og samstarfsaðilar hafa lagt fram beiðni um framlag að upphæð 14,6 milljóna Bandaríkjadala til þess að stemma stigu við hungursneyðinni sem læsir nú klóm sínum um landið.
„Af þessum 800.000 börnum þjást 250.000 þegar af vannæringu og [önnur] 30.000 þeirra eru alvarlega vannærð,“ sagði verkefnastjóri UNICEF, Enrico Leonardi.
„Fólk í Níger stendur frammi fyrir þessu vandamáli núna. Því miður er einnig hætta á að hungursneyðin nái til nágrannaríkjanna Malí, Nígeríu og Búrkína Fasó. Við þurfum að vinna bug á þessu vandamáli eins fljótt og auðið er, áður en ástandið í nágrannalöndunum versnar og verður eins alvarlegt og það er í Níger.”
Eftirspurn eftir aðstoð frá næringarmiðstöðvum sem hljóta stuðning frá UNICEF hefur aukist gríðarlega á síðustu vikum. UNICEF hefur nú þjálfað 80 heilbrigðisstarfsmenn í því að hjúkra vannærðum börnum og hefur veitt birgðir, tæki og matvæli til 15 næringarmiðstöðva víðsvegar um Níger.
UNICEF hefur einnig útvegað Nígerbúum nauðsynleg lyf og tæki til að greina malaríusmit. Flugvélafarmur með 145 tonn af UNIMIX – sérstakri matvælablöndu fyrir vannærð börn – var sendur til Níger 23. júlí. Verið er að undirbúa aðra sendingu af UNIMIX, í þetta sinn 360 tonn að stærð, sem hugað er að fari af stað frá Belgíu þann 4. ágúst.

Aðstoðar er þörf strax
Aboudu Adjibade, yfirmaður UNICEF í Níger sagði að hægt hefði verið að koma í veg fyrir ástandið hefði verið brugðist rétt við þurrkum og engisprettufaraldri sem herjaði á landið á uppskerutímabili ársins 2004.
„Það er hörmulegt að sjá svo mörg börn vannærð,” sagði Adjibade. „Við munum reyna að bjarga eins mörgum mannslífum og við getum.”
UNICEF hefur lagt fram beiðni um 14,6 milljónir Bandaríkjadala á næstu 5 mánuðum, til þess að vinna bug á hungursneyðinni í Níger. Fjármagnið verður nýtt til þess að ala önn fyrir hinum 280.000 börnum sem nú þjást af vannæringu í Níger og til þess að halda áfram samvinnu við aðrar hjálparstofnanir að því að styrkja varnir Nígerbúa gegn uppskerubrestum og fylgjast með þróun mála í landinu.
Skrifstofur UNICEF í nágrannaríkjunum Malí, Búrkína Fasó og Máritaníu fylgjast vel með gangi mála í Níger og reyna þannig að hindra það að slík hungursneyð komi upp í örðum löndum í Vestur-Afríku.