Vissir þú að...

UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.

Þú ert hér:  

Fjöldi nýrra heimsforeldra

Fjöldi nýrra heimsforeldra bættust í hópinn á meðan á útsendingu Live8-tónleikanna stóð á Sirkus um helgina. Alls skráðu sig um 600 manns í gegnum síma og á netinu og eru íslenskir heimsforeldrar því orðnir um 4300. Gert er ráð fyrir að fleiri muni skrá sig á næstu vikum þar sem heimsforeldraátak UNICEF stendur enn með auglýsingum í sjónvarpi og útvarpi.

Útsending Sirkus á Live8 verður endurtekin næstkomandi laugardag 9. júlí. Minnt er á númerið 5 62 62 62 og fólk er hvatt til að leggja sitt af mörkum til að bæta líf barna um allan heim.

Reynir Lyngdal og kvikmyndatökulið frá Pegasus gerði auglýsingarnar með þeim Evu Maríu Jónsdóttur, dagskrárgerðakonu, og Hilmi Snæ Guðnasyni, leikara. Baugur Group og 365 borga birtingar. OgVodafone svaraði í söfnunarsímann okkar á meðan á hinni 12 klukkustunda útsendingu stóð. 

Eitt af meginmarkmiðum Live8-tónleikanna er að draga úr fátækt með því að hvetja leiðtoga G8-ríkjanna til að fella skuldir þróunarlandanna, koma á betri viðskiptaháttum og auka þróunaraðstoð.

Sem stærstu barnahjálparsamtök í heimi hefur UNICEF unnið að því markmiði að draga úr fátækt og afleiðingum hennar í nær 60 ár. Öll börn eiga að fá stuðning, umhyggju og vernd.

Ef iðnríkjunum öllum, þ.á.m. Íslandi, tekst að draga verulega úr fátækt í heiminum, mun tíðni ungbarnadauða lækka, hægt verður að koma í veg fyrir meiri skaða af völdum HIV/alnæmis, og veita börnum menntun, mat og grunnheilsugæslu. Þetta eiga að vera mikilvægustu markmið okkar allra.

Hvert framlag skiptir miklu máli og þess vegna hvetjum við Íslendinga, nú sem endranær, til að gerast heimsforeldrar.