Mikilvæg aðstoð berst til barna í Pakistan
Mikilvæg aðstoð frá UNICEF berst nú til afskekktra svæða í Pakistan sem urðu illa úti í jarðskjálftanum sem reið yfir laugardaginn 8. október.
Fjölmörg þorp á þessu fjalllenda svæði einangruðust þegar vegir eyðilögðust í jarðskjálftanum. Verið er að koma birgðum til þeirra þurfandi loftleiðis frá vörugeymslu UNICEF í Karachi, höfuðborg Pakistan, til Peshawar og þaðan til Mansehra. Frá Manshera eru herþyrlur pakistanska hersins notaðar til að ferja neyðarbirgðir til afskekktustu svæðanna.
Markmið starfsemi UNICEF hefur breyst frá leitar- og björgunarstörfum til þess að veita lífsnauðsynlega aðstoð til þeirra sem eftir lifðu. UNICEF hefur þegar veitt nauðsynlegar birgðir eins og tjöld, ábreiður, hlýjar peysur, vatnstanka og næringarríkt prótínkex til fórnarlamba jarðskjálftans.
Fyrstu dagana eftir skjálftann lentu fimm flugvélar frá UNICEF með fullfermi af ábreiðum og næringarríku kexi í Pakistan. Ráðgert er að sjö flugvélafarmar fari til Pakistan á næstu dögum, með allt að 100.000 ábreiðum. Birgðir af næringarríku prótínkexi náðu til borgarinnar Peshawar frá Kaupmannahöfn á fimmtudaginn síðasta. Prótínkexið nýtist barni til matar í þrjá daga.
„Mesta þörfin er á lyfjum, sjúkragögnum og matvælum. Þörf á vatni er líka óðum að aukast og nú þegar veðrið hefur versnað eykst þörf á skjóli,” sagði DR. Tamur Mueenuddin, verkefnastjóri heilbrigðisverkefna UNICEF í Pakistan.
Næstu skref
Nú þegar vetur nálgast er þörf fyrir matvæli og skjól fyrir þá sem lifðu af skjálftann gríðarmikil.
UNICEF leiðir frekari starfsemi í svæðunum sem urðu illa úti í jarðskjálftanum, til dæmis stendur UNICEF fyrir herferð gegn mislingum, ásamt stjórnvöldum í Pakistan. UNICEF vinnur einnig með stjórnvöldum að því að reisa vatnsbirgðastöð í Muzaffarabad og meta menntakerfið og þörf fyrir skóla og skólagögn á jarðskjálftasvæðunum.
Jarðskjálftinn eyðilagði fjölda skóla, eða 8.000 samkvæmt bráðabirgðamati UNICEF. Einungis á Balakot-svæðinu er talið að hundruð skólabarna hafi látist samstundis þegar jarðskjálftinn reið yfir snemma á laugardagsmorguninn 8. október.
Sumir skólanna standa að hluta til, meðan aðrir eru rústir einar. Í rústum Kormi-grunnskólans nærri Balakot má sjá vísbendingar um hversu hratt var reynt að koma 140 nemendum út úr skólanum. Sjá má litla barnaskó í rústunum og námsbækur liggja á víð og dreif.
„Víða hefur jarðskjálftinn haft mest áhrif á konur og börn. Þau voru líklegri til að vera innandyra á þeim tíma sem skjálftinn reið yfir. Að sjálfsögðu hafði skjálftinn afdrifaríkar afleiðingar fyrir alla, en konur og börn urðu fyrir mestum meiðslum samkvæmt upplýsingum frá sjúkrahúsum á svæðinu,” sagði Dr. Mueenuddin.
Börn hafa nú engan stað til þess að læra eða leika sér. Nú þegar matvælaaðstoð hefur borist er næsta verkefni UNICEF að veita börnunum skjól frá veðri og vindum. Nú þegar er hitastig á næturnar rétt við frostmark.