Hjálparstarf UNICEF í Pakistan
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna, UNICEF, vinnur nú hörðum höndum við hjálparstarf eftir jarðskjálftann sem reið yfir Pakistan, Indland og Afganistan á laugardagsmorgun. Aðeins klukkutímum eftir hamfarirnar hóf UNICEF að flytja teppi, föt, tjöld, sjúkragögn, fæðu fyrir ungabörn, sápur, vatn og vatnshreinsitöflur á svæðið. UNICEF og Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) veita aðstoð með samgöngur og tæknimál til hjálparsveita á svæðinu og sjúkragögn til lækna sem sendir voru á vegum ríkisstjórnarinnar til hjálpar þeim sem eru illa slasaðir. Gögn hafa verið send með þyrlum til afskekktustu svæðanna.
Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, sagði að mikilvægt væri að sjá fyrir þörfum barna strax eftir hamfarir. „Viðbrögð UNICEF núna eru fyrst og fremst að bjarga mannslífum, þ.e. hlúa að sjúkum og veita fólki hreint vatn, en UNICEF hefur mikla reynslu á því sviði. Því næst verður komið upp neyðarbúðum fyrir heimilislausa og þá mun UNICEF hefja bólusetningar og sjá til þess að börnum verði veitt sálræn aðstoð, m.a. með því að koma upp tímabundnum skólum,“ sagði Stefán.
Einn af hverjum fimm íbúum á svæðinu er barn undir fimm ára aldri og næstum helmingur íbúa er undir 18 ára og því er nauðsynlegt að huga sérstaklega að þörfum barna og ungmenna í neyðaraðgerðum. Einnig er um fjórðungur íbúa Pakistans undir fátækramörkum og því er erfiðara fyrir þá að takast á við slíkar hamfarir. UNICEF telur að áfallahjálp verði stór hluti hjálparstarfsins, sér í lagi fyrir börn. Fólk er hrætt við að sofa innan dyra og verða skólar lokaðir í nokkra daga, en UNICEF mun einbeita sér að því að koma börnum í skóla eins fljótt og auðið er. UNICEF vinnur náið með ríkisstjórn Pakistans og öðrum hjálparsamtökum til að ákvarða hver næstu skref verði í hjálparstarfinu.
UNICEF er með starfsfólk, hjálpargögn og verkefni í gangi í öllum þeim þremur löndum sem urðu fyrir skjálftanum. Verkefni UNICEF í Pakistan snúa meðal annars að heilsugæslu fyrir mæður og ungabörn, menntun, vatni og hreinlæti og verndun barna gegn misnotkun.
Yfirmaður aðgerða í Pakistan, Omar Abdi, sagði að jarðskjálftasvæðið væri mjög erfitt sökum fjalllendis og að svæðið væri margbreytilegt frá einum dal til annars. „Það hafa verið rigningar og haglél sem hafa aukið á erfiðleika heimilislausra fórnarlamba skjálftanna. Þau eru of hrædd til að skýla sér undir þeim húsþökum sem eftir standa. Auk þess hafa aurskriður hamlað hjálparstarfi.“
Í nær 60 ár hefur UNICEF verið leiðandi í hjálparstarfi fyrir börn. UNICEF starfar á vettvangi í 157 löndum og stendur vörð um líf barna frá fæðingu til fullorðinsára. UNICEF veitir flestar bólusetningar til barna í þróunarlöndunum, styður heilsugæslu- og næringaverkefni fyrir börn, veitir börnum menntun og vernd gegn ofbeldi, misnotkun og HIV/alnæmi. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna.