UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Þó svo miklum árangri hafi verið náð í að útrýma mænusótt hafa nokkur tilfelli verið skráð í Nígeríu og nágrannaríkjum þess. UNICEF telur að ef takist ekki að útrýma mænusótt í Nígeríu geti hún ógnað veröldinni að nýju. Sjúkdómurinn leggst á börn, kripplar þau og lamar. Nýlega greindist Aliyu, 3 ára, með mænusótt og segir faðir hans, Muhammed, frá baráttu sinni við sorgina sem fylgir því að sjá barnið sitt veikjast af svo hræðilegum sjúkdómi.
Muhammed er 53 ára, stoltur sex barna faðir. Hann vinnur á tveimur stöðum til að sjá fyrir fjölskyldu sinni, hann starfar sem bóndi og á næturnar er hann öryggisvörður á ríkisstofnun. Nýlega veiktist þriggja ára sonur hans af mænusótt sem jók enn á erfiðar aðstæður fjölskyldunnar.
„Hann er yngsta barnið mitt af sex. Ég hafði strax áhyggjur þegar hann var tveggja ára og fór ekki út með leikfélögum sínum,“ rifjar Muhammed sorgmæddur upp. „Þeir sem fæddust á svipuðum tíma og hann byrjuðu að koma að skýlinu okkar til að leika við Aliyu litla, en hann stendur varla upp til að leika við þá. Í lok síðasta árs tók ég eftir að hægri fótur hans var ekki eins virkur og vinstri fóturinn.“
Muhammed fór ekki til læknisins strax af því hann hélt að þar sem mismunur á lengd fótleggjanna var ekki til staðar væri ekkert sem læknarnir gátu gert fyrir hann. En á meðan á bólusetningarátaki stóð í nágrenni Muhammeds fór hann með Aliyu í skoðun. Nokkru síðar greindist Aliyu litli með mænusótt og ljóst var að hann myndi lamast þar sem engin lyf eru við sjúkdómnum.
Heilsugæslustarfsmenn útskýrðu fyrir Muhammed og fjölskyldunni að eina leiðin til að verja börn gegn sjúkdómnum væri bólusetning allra barna undir fimm ára aldri.
UNICEF og samstarfsaðilar hafa staðið fyrir stórum bólusetningarátökum þar sem meira en 40 milljón börn í Nígeríu undir fimm ára aldri hafa verið bólusett. Árið 2004 var farið í fjögur bólusetningarátök um allt landið og áætlað er að þau verði fimm árið 2005. Í hverju átaki fara meira en 138 þúsund heilsugæslustarfsmenn á milli húsa til að ná til allra barna og tryggja að þau fái bólusetningar gegn mænusótt (Oral Polio Vaccine).
UNICEF hefur sérstaklega einbeitt sér að því að virkja grasrótina í samfélaginu. Það þótti nauðsynlegt til að ná trausti fólksins eftir að mænusóttartilfellum tók að fjölga á árunum 2003 og 2004 þegar sum héruð í Norður-Nígeríu ákváðu að fresta bólusetningum gegn mænusótt.
Þó svo öll héruðin hafi tekið þátt í landsátaki gegn mænusótt á miðju ári 2003, rekast heilsugæslustarfsmenn enn á fjölskyldur sem vilja ekki láta bólusetja börnin sín. UNICEF hefur því leitað samstarfs við trúar- og þorpsleiðtoga til að vinna á hræðslu foreldra við bólusetningum.
Muhammed segir að orsök mænusóttar sé fáfræði og afneitun. „Ég sagði alltaf við konuna mína að hún skyldi tilkynna öll börnin okkar þegar á þessum bólusetningardögum stæði,“ segir hann. „En hún lét ekki bólusetja Ailyu í eitt skiptið af því mikið af fólki neitaði. Nú hafa allir nágrannarnir lært af biturri reynslu okkar. Þeir fara jafnvel og leita að heilsugæslustarfsmönnum til að forðast það að börn þeirra lamist.“
„Ég held að vandamálið sé það að við erum ekki nógu menntuð til að þekkja afleiðingar þess að forðast bólusetningar,“ segir Muhammed. „Áætlun mín fyrir Aliyu er að veita honum alla þá menntun sem ég get veitt honum, svo að hann endurtaki ekki mistök mín í framtíðinni þegar hann er nógu gamall til að eiga fjölskyldu sjálfur. Ef ég mennta hann, myndi hann gera mig mjög stoltan í framtíðinni.“
Muhammed er einnig tilbúinn til að aðstoða heilsugæslustarfsmennina í bólusetningarátökum. „Ef ég þarf að taka son minn með mér til að sannfæra fólk, get ég gert það, af því ég vil hjálpa til við að enda þetta vandamál sem lamar börnin okkar. Ég mun berjast gegn mænusótt það sem ég á eftir ólifað,“ segir Muhammed að lokum.
Frá og með 23. september 2005 voru 458 börn með mænusótt í 19 héruðum landsins, en á sama tíma í fyrra voru 634 tilfelli í 30 héruðum landsins. Alls lamaði sjúkdómurinn 782 börn árið 2004. Markmiðið er að útrýma nýjum mænusóttartilfellum fyrir lok árs 2005. Talið er að mænusóttin hafi tekið sig upp í Nígeríu og breiðst þaðan til 18 annarra landa. Því er unnið hörðum höndum við að bólusetja öll börn í þessum löndum.
UNICEF Ísland hefur hug á að styðja við bólusetningarátök í Nígeríu með hjálp íslenskra fyrirtækja.