UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna: Heilsugæsla, hreint vatn, vernd og menntun
Nú, þegar hálft ár er liðið frá hamförunum við Indlandshaf, gefst hjálparstofnunum tækifæri á að líta yfir árangur starfs síns og verkefnin framundan. UNICEF Ísland hefur þegar sent yfir 11,5 milljónir króna til hamfarasvæðanna af rúmlega 18 milljónum sem UNICEF Ísland hafði til ráðstöfunar frá Neyðarhjálp úr norðri.
Miklum árangri hefur verið náð: Ekki hefur orðið vart við sjúkdómsfaraldra sem rekja má til hamfaranna, börn eru komin aftur í skóla, enginn hefur týnt lífi sökum hungurs og þeir sem eftir lifðu hlutu heilsugæslu, aðstoð og vernd.
En þó svo að spretthlaupinu sé lokið, er maraþonið rétt að byrja. Þau verkefni sem liggja fyrir á hamfarasvæðunum við Indlandshaf eru mikil. UNICEF veitir neyðar- og þróunaraðstoð á öllum sviðum með hagsmuni barna að leiðarljósi.
UNICEF hefur lagt áherslu á heilsuvernd, vatns- og hreinlætisverkefni, en þeir þættir eru mikilvægir til að koma í veg fyrir sjúkdóma og bjarga lífi barna. Menntun hefur þó verið eitt af megináherslum UNICEF frá upphafi en UNICEF telur að hún sé lykilatriðið í að veita börnum von á ný og tryggja þeim framtíð. Í skólanum er einnig hægt að veita börnum sálræna aðstoð.
Árangur:
• Meira en 1,2 milljónir barna, 6-15 ára, hafa verið bólusettar gegn mislingum af UNICEF og Alþjóðaheilbrigðismálastofnuninni (WHO). Það eru yfir 6600 börn á dag á síðustu 180 dögum.
• Til að koma í veg fyrir malaríu hefur UNICEF dreift 240 þúsund moskítónetum.
• Nær 850 þúsund börn hafa fengið A-vítamín bætiefni.
• Meira en 561 þúsund börn hafa getað gengið í skóla á ný vegna þess að UNICEF veitti þeim skólagögn (e. school-in-a-box).
• UNICEF hefur greitt fyrir uppbyggingu 1573 skóla.
• Áætlað er að 211 þúsund börn hafa notið góðs af sálrænni aðstoð frá UNICEF.
• UNICEF veitir nú rúmlega 1 milljón manna aðgang að hreinu drykkjarvatni.
• 328.670 börnum hefur verið veitt gleði með leikjapökkum UNICEF (e. recreation kits).
UNICEF heldur áfram að veita:
• Meira af hreinu og öruggu drykkjarvatni og grundvallarhreinlætisaðstöðu.
• Bólusetningar til að koma í veg fyrir dauðsföll vegna barnasjúkdóma.
• Sérstaka fæðugjöf fyrir barnshafandi konur og vannærð börn.
• Þjálfun til að hjálpa fullorðnum að koma auga á og veita umönnun til barna sem orðið hafa fyrir sálrænu áfalli.
• Skjól og vernda munaðarlaus börn.
• Skólagögn, kennslugögn og tímabundna skóla. UNICEF mun einnig halda áfram að endurbyggja ónýta skóla og byggja nýja skóla.
Kíkið á heimasíðuna http://ocha.unog.ch/ets/til að sjá upplýsingar um framlög til hjálparstofnana Sameinuðu þjóðanna, hvað beðið var um, hve miklir peningar hafa skilað sér og hversu miklu hefur verið eytt.