Vissir þú að...

UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.

Þú ert hér:  

Of mörg börn ganga ekki í skóla

Þrátt fyrir að mikill árangur hafi náðst í menntun barna í þróunarlöndunum ganga of mörg börn ekki í skóla, samkvæmt nýrri skýrslu UNICEF. Skýrslan, sem nefnist „Progress for Children”, fjallar um jafnrétti kynjanna og grunnmenntun. Hún er samstarfsverkefni margra aðila innan alþjóðasamfélagsins sem vilja stuðla að því að menntun sé jafn aðgengileg stúlkum sem drengjum.
Í skýrslunni segir að þó að sífellt fleiri stúlkur gangi í skóla um allan heim er munurinn milli skólagöngu stúlkna og drengja enn alltof mikill.

„Við teljum að 86% barna á grunnskólaaldri muni vera í skóla nú á árinu 2005, en það er hækkun frá 82% árið 2001, ” sagði Carol Bellamy, framkvæmdastjóri UNICEF. „Menntun allra barna er takmark sem hægt er að ná, aðgangur að menntun er réttur sem öll börn fá við fæðingu.”

125 af 180 löndum eru á góðri leið með að ná jafnrétti í menntun nú fyrir lok ársins 2005 og ná þannig einu af þróunarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna.

Fjölmörg lönd í Norður-Afríku, Suður-Asíu, Miðausturlöndum og Vestur- og Mið-Afríku, þar sem hindranir eins og fátækt, HIV/alnæmi og átök standa í vegi fyrir menntun barna, munu ekki ná takmarkinu um jafna menntun kynjanna.
Í skýrslunni kemur einnig fram að af þeim börnum sem ekki ganga í skóla búa 82% í dreifbýli og 75% eiga mæður sem ekki gengu í skóla.

Mikilvægum árangri hefur þó verið náð í menntun barna í þróunarlöndunum. Samkvæmt áætlunum munu 15 milljónum færri börn vera utan skóla árið 2005 en voru árið 2001.

„Skýrslan sýnir að markmið okkar um að koma fleiri stúlkum í skóla hefur tekist að auka skólasókn bæði stúlkna og drengja,” sagði Carol Bellamy.