Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Börnin komin í skólana og farin að brosa aftur

Hin átta ára gamla Ishani hefur loksins fengið að byrja aftur í skólanum eftir langar vikur af umróti eftir hamfarirnar á Sri Lanka. Hún gengur nú í Hambantota-grunnskólann og það birtir yfir henni þegar hún er spurð hvernig henni finnist að vera komin aftur í skólann. „Það sem mér finnst skemmtilegast er að vera byrjuð að læra og hitta vinina aftur,” sagði Ishani.

Hambantota er lítið fiskiþorp á suðurströnd Sri Lanka varð illa úti í hamförunum. Bærinn var eitt sinn þekktur fyrir fiski- og saltiðnað sinn, en flóðbylgjan eyðilagði byggingar, báta og bryggjur og lamaði þar með efnahag bæjarins. Þúsundir fjölskyldna eru nú án atvinnu.

Ishani og bróðir hennar voru heima þegar flóðbylgjan reið yfir. „Við klifruðum á rúmið en það flaut strax út. Við vorum heppin vegna þess að stuttu seinna hrundi húsið,” sagði Ishani.

Fjölskylda Ishani, sem fyrir kraftaverk björguðust öll, hafa flutt þrisvar sinnum milli búða á vikunum eftir hamfarirnar.
„Ég sagði við foreldra mína að við yrðum að hætta að flytja. Mig langaði til þess að byrja aftur í skólanum. Ég saknaði vina minna og kennarans míns,” sagði Ishani.

Skólastjóri Hambantota-grunnskólans, Vimalaya Dissanayake, sagði að flóðbylgjan hafi tekið gríðarlegan toll í skólanum sínum. Þó að byggingin hafi ekki skaðast þá létu 102 nemendur og 3 kennarar lífið í hamförunum.

„Mörg börn misstu allt í hamförunum. Með stuðningi UNICEF og þeirra sem gáfu persónuleg framlög erum við að jafna okkur og byggja samfélagið upp aftur. Draumur minn er að gera skólann okkar enn betri en hann var áður,” bætir Dissanayake við.

UNICEF hefur hrint af stað viðamiklu átaki í því að tryggja að öll nauðsynleg skólagögn, námsbækur, stuðningsefni fyrir kennara, húsgögn og skólabúningar séu til staðar þegar nemendur snúa aftur til skólanna eftir hamfarirnar. UNICEF hefur sent „skólapakka” (e. school in a box) sem duga fyrir 400.000 börn og ættu að hjálpa til við að koma reglu á líf barnanna á ný.

Sérfræðingar eru sammála um að menntun sé ein af bestu leiðunum til þess að hjálpa börnum að ná sér eftir hörmungar. Mikilvægt er að skólar séu griðastaðir fyrir börn.

Hægt er að lesa fleiri sögur af endurbyggingu eftir hamfarirnar við Indlandshaf hér.