English version

Stjörnurnar flykkjast að til að styrkja fórnarlömb flóðbylgjunnar

Sameinuðu þjóðirnar, Barnahjálp SÞ og tónlistarstöðin MTV hafa tekið höndum saman og munu halda söfnunartónleika þann 3. febrúar kl. 15:00 í Bangkok, Tælandi. Fram koma margir af þekktustu tónlistamönnum nútímans og nokkrir gamlir og góðir. Meðal þeirra eru Bryan Adams, Ashanti, Enrique Iglesias, Black Eyed Peas, Franz Ferdinand, Alicia Keys, Good Charlotte, Simple Plan og nýliðarnir í Keane, sem njóta mikilla vinsælda hérlendis.

Nokkrir tónlistarmenn gátu ekki séð sér fært að mæta en tóku þess í stað upp atriði sem sýnd verða á tónleikunum. Jennifer Lopez, Sting, 50 cent, Nelly, Green Day, Moby, Ronan Keating og Ricky Martin nýttu sér þann kost. Sífellt fleiri listamenn bætast á listann. Framkvæmdarstjóri UNICEF, Carol Bellamy, og aðalritari Sameinuðu Þjóðanna, Kofi Annan, verða heiðursgestir á viðburðinum.

Markmiðið er að ná til sem flestra heimila og því er MTV stöðin ókeypis á meðan tónleikarnir standa yfir. Einnig er hægt að sjá beina útsendingu á heimasíðu MTV í Asíu og á heimasíðu UNICEF.