Mikill stuðningur
500 manns hafa á fyrsta degi hringt í söfnunarsíma átaksins og gefið 809.000 kr. Fyrirtæki sýna hugkvæmni m.a. getur fólk keypt kaffi frá Aceh-héraði og lagt söfnuninni þannig lið. Dagskrá á Glerártorgi á Akureyri á laugardaginn verður í höndum listamanna úr fjórðungnum. Fleiri sjálfboðaliða vantar í verslunar-miðstöðvarnar föstudag og laugardag.
Enginn kostnaður við söfnunarsímanúmer
Síminn, einn aðalstyrktaraðili átaksins, fellir niður þjónustugjöld af söfnunarsímum, leggur til söfnunarsímanúmerin, setur upp símaver og mannar það með 150 manns úr starfsliði sínu ásamt ýmsu þekktu fólki úr samfélaginu á lokadegi söfnunarinnar. Auk þess safna starfsmenn Símans fé sín á milli sem þeir ætla að leggja til söfnunarinnar. Síminn ætlar að tvöfalda þá upphæð.
Kaffi frá Aceh-héraði
Fyrirtæki beita hugkvæmni í söfnunum sínum og framlögum t.d. stóð Hárið fyrir styrktarsýningu sem gaf 3,5 milljónir og skoraði um leið á Borgarleikhúsið að gefa til söfnunarinnar. Kaffitár selur kaffi frá Aceh-héraði á Súmötru sem varð verst úti í hamförunum. Kaffitár selur þetta kaffi nú á 700 kr. pakkann og fer allt söluandvirði nema virðisaukaskattur (96 kr.) í söfnunina. Verslanir geta haft samband við Kaffitár til að koma kaffinu í sölu í sínum verslunum. Regnboginn mun á föstudaginn selja aðgang að mynd Stuðmanna „Í takt við tímann” og mun allt andvirði miða á allar sýningar myndarinnar þann dag renna til söfnunarinnar. Regnboginn hyggst skora á Sambíóin að gera slíkt hið sama.
Söfnunarfénu verður varið til neyðaraðstoðar nú, og uppbyggingar á næstu árum á vegum fimm mannúðarsamtaka; Barnaheilla - Save the Children, Hjálparstarfs kirkjunnar, Rauða kross Íslands, SOS barnaþorpa og UNICEF - Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna.
Söfnunarsímanúmerin eru:
901 1000 sem gefur 1.000 kr.
901 3000 sem gefur 3.000 kr.
901 5000 sem gefur 5.000 kr.
Tekið við stærri framlögum á laugardag í síma 755 5000
Í þetta fer söfnunarféð:
Treysta framtíð barna sem misst hafa foreldra sína.
Hjálpa fjölskyldum sem misstu allt sitt til að koma undir sig fótunum á ný.
Veita læknisaðstoð og heilsugæslu og koma í veg fyrir frekari skaða.