Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Alnæmissamtökin veita styrk

Þann 1. desember, á alþjóða alnæmisdeginum, veittu Alnæmissamtökin 100.000 kr. styrk til herferðar UNICEF sem ber yfirskriftina „Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi". Stefán Ingi Stefánsson, framkvæmdastjóri UNICEF Ísland, veitti styrknum viðtöku á skrifstofu Alnæmissamtakanna.

UNICEF, UNAIDS og aðrir samstarfsaðilar hófu þann 25. október alþjóðlega herferð sem beina á sjónum heimsins að þeim geigvænlegu áhrifum sem HIV/alnæmisfaraldurinn hefur á börn. Styrkur Alnæmissamtakanna mun renna til þessarar herferðar UNICEF.
Það er staðreynd að minna en 5% HIV-smitaðra barna fá viðhlítandi meðferð og milljónir barna sem misst hafa foreldra sína af völdum alnæmis fá engan stuðning. Börn eru hin gleymda ásjóna alnæmisfaraldursins. Málefni barna gleymast oft í umræðum og stefnumótunum um alnæmisfaraldurinn og börn skortir tilþrifanlega aðgengi að grunnheilsugæslu og fræðslu um forvarnir. Milljónir barna hafa misst foreldra og systkini og skortir heilsugæslu, vernd og tækifæri til menntunar vegna þess gífurlega tolls sem alnæmisfaraldurinn tekur á samfélögum þeirra.

Við upphaf herferðarinnar „Sameinumst fyrir börn, sameinumst gegn alnæmi”, minntu þau Ann M. Veneman, framkvæmdastjóri UNICEF og Peter Piot, framkvæmdastjóri UNAIDS á að á hverri mínútu:
-deyr barn af völdum alnæmistengdra sjúkdóma
-smitast barn af HIV-veirunni
-smitast fjögur ungmenni á aldrinum 15-24 ára af HIV-veirunni

Auk þess er talið að um 15 milljónir barna hafi misst að minnsta kosti annað foreldrið af völdum alnæmis. Þrátt fyrir þetta fá færri en 10% barna hvers líf hefur orðið fyrir alvarlegum áhrifum vegna alnæmisfaraldursins félagslegan stuðning. Í Afríku sunnan Sahara, þar sem reiðarslag faraldursins hefur verið hvað mest, er öll félagsleg þjónustu á endimörkum þanþols sins.
„Næstum 25 árum eftir upphaf alnæmisfaraldursins fá færri en 10% barna hvers líf hefur orðið fyrir áhrifum vegna alnæmis aðstoð. Gífurlegur fjöldi barna þarf að alast upp ein og óstudd, eru neydd til að fullorðnast allt of hratt eða fá ekki tækifæri til að vaxa úr grasi,” sagði Kofi Annan, framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna. „Alnæmi hefur einfaldlega gífurlega eyðileggjandi áhrif á barnæskuna.”