Vissir þú að...

árið 2009 dreifði UNICEF svokölluðum skólapökkum til 3.832.000 barna í 54 löndum. Skólapakkarnir eru sérstaklega hannaðir fyrir neyðarsvæði eða þar sem mjög vanbúinn skóli er fyrir.

Þú ert hér:  

Kvenfélagasamband Íslands afhendir einnig peningagjöf

Helga Guðmundsdóttir, formaður Kvenfélagasambands Íslands, afhenti í dag Stefáni Inga Stefánssyni framkvæmdastjóra UNICEF Ísland 172.500 krónur fyrir hönd þeirra kvenfélaga sem ekki höfðu saumað dúkkur til styrktar menntaverkefnis UNICEF Í Gíneu-Bissá. Af yfir 100 kvenfélögum um land allt voru 11 kvenfélög sem ákváðu að gefa pening í stað þess að sauma dúkkur í samstarfsverkefni UNICEF Ísland og KÍ. Ágóðinn af söfnun meðal þeirra var 172.500 krónur sem Helga afhenti Stefáni í dag á fundi með starfsfólki UNICEF og formönnum héraðssambanda KÍ.