Vissir þú að...

á 45 sekúndna fresti deyr barn af völdum malaríu. Flugnanet til að koma í veg fyrir malaríu kostar aðeins 776 krónur.

Þú ert hér:  

Pétur Björnsson styrkir verkefni UNICEF í Gíneu-Bissá

Pétur Björnsson, fyrrverandi forstjóri og eigandi Vífilfells, hefur veitt Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna í Gíneu-Bissá 5 milljóna króna styrk. Fjárstuðningnum verður varið alfarið til verkefnis sem miðar að því að styrkja framleiðslu joðbætts salts í landinu og um leið veita stúlkum og ungum mæðrum menntun.

Framkvæmdastjóri UNICEF, Stefán Ingi Stefánsson, heimsótti eitt slíkt verkefni í Gíneu-Bissá í febrúar síðastliðnum og segir hann það vera mjög ánægjulegt að taka við þessum styrk frá Pétri Björnssyni. „UNICEF hefur möguleika á að beina slíkum styrkjum beint til verkefna í Afríku og mun þessi fjárstuðningur renna óskertur til verkefnisins í Gíneu-Bissá,“ segir Stefán Ingi. Verkefnið verður sett af stað á sex svæðum og stendur yfir til lok árs 2006.

Bætt úr ólæsi kvenna og joðskorti
Stefán segir bæði börn og konur njóta góðs af fjárstuðningi Péturs Björnssonar. „Verkefnið er tvíþætt, meðal annars er ætlunin að berjast gegn joðskorti hjá börnum og barnshafandi konum og hins vegar á að ýta undir læsi og menntun stúlkna og kvenna. Konurnar koma og vinna hálfan daginn við að joðbæta saltið, hinn hluta dagsins eru þær í námi. En þess má geta að aðeins 24% kvenna í landinu eru læsar,“ segir Stefán. 

Pétur sagði við afhendingu styrksins að hann vonaðist til að stuðningurinn myndi bæði hjálpa til þar sem þörf væri á og vekja athygli almennings á bágbornum aðstæðum fólks í Afríku.

Joðskortur mikill
Joðskortur er mikill í Gíneu-Bissá og segir í skýrslu frá UNICEF að áætlað sé að árlega fæðist 12 þúsund börn greindarskert vegna joðskorts mæðra þeirra við meðgöngu. Þegar joðskortur er eins mikill og í Gíneu-Bissá má áætla að heildar-greindarvísitala þjóðarinnar lækki um 10-15 prósentustig og hefur það áhrif á framleiðslugetu þjóðarinnar í heild.

Stefán segir að það sé einnig gott að vita til þess að verkefnið sem nú hefur fengið rausnarlegan styrk frá Pétri mun haldast í hendur við verkefnið sem Baugur styrkir í Gíneu-Bissá og miðast að því að byggja svokölluð „Djemberem“ eða gæsluvelli í yfir 65 þorpum landsins. „Er það markmiðið að saltframleiðslan og skólarnir verði settir upp hjá slíkum gæsluvöllum og að börn kvennanna fái umönnun þar,“ segir Stefán. 

Þess má geta að Kiwanis-hreyfingin hefur unnið náið með UNICEF að því að auka framleiðslu joðbætts salts í Gíneu-Bissá á síðastliðnum árum.

Helstu markmið verkefnisins eru eftirfarandi:
• Að auka neyslu joðbætts salts meðal almennings um 90%.
• Að 100% þeirra kvenna sem vinna við saltframleiðslu á hinum 6 svæðum verði læsar.
• Að a.m.k. eitt „Djemberem“ sé á staðnum þar sem framleiðslan er svo börn kvennanna fái stuðning og umönnun.