Vissir þú að...

þegar neyð skellur á leiðir UNICEF oftast alþjóðlegt hjálparstarf í vatns- og hreinlætisverkefnum, en með því að tryggja hreinlæti og aðgang að heilnæmu vatni má koma í veg fyrir sjúkdómsfaraldra.

Þú ert hér:  

Sumar gjafir skipta máli

Allsérstakur sumarglaðningur mun berast inn á hvert heimili á Íslandi fyrstu viku sumars. Um er að ræða DVD disk með teiknimyndinni Kötu – litlu lirfunni ljótu á alls sjö tungumálum. Skýringin á þessum sumarglaðningi er sú að Umhyggja – félag til styrktar langveikum börnum og UNICEF Ísland hafa tekið höndum saman, í samvinnu við CAOZ hf., um átak til styrktar starfsemi samtakanna og til góðs fyrir börn, bæði á Íslandi og um heim allan.

Vonum við að allir Íslendingar taki höndum saman og láti gott af sér leiða í gegnum þetta átak því sumar gjafir skipta öllu máli!!

Slagorð styrktarátaksins er: „Sumar gjafir skipta öll börn máli – Sumargjöf Umhyggju og UNICEF“. Með disknum fylgir gíróseðill að upphæð 2.000 krónur þar sem viðtakanda gefst tækifæri til að styrkja gott málefni. Dreifing diskanna mun standa yfir dagana 22. apríl til 5. maí nk.

Þessi útgáfa af teiknimyndinni Litlu lirfunni ljótu er stærsta upplag sem dreift hefur verið af nokkurri mynd á Íslandi. Myndin, sem er fyrsta íslenska tölvugerða teiknimyndin, sló í gegn þegar hún var frumsýnd árið 2002 og hefur unnið til fjölda verðlauna og hlotið margar viðurkenningar. Útgáfa teiknimyndarinnar, sem er sérstaklega unnin fyrir þetta átak, er talsett á 7 tungumálum, íslensku, dönsku, norsku, sænsku, finnsku, frönsku og ensku. Ásamt myndinni er á disknum heimildarmynd um gerð hennar en þess má geta að íslenska útgáfa myndarinnar er einnig með hljóðrás fyrir heimabíókerfi.

Hagnaður átaksins er áætlaður 45% af tekjum þess og rennur hagnaðurinn beint til Umhyggju og UNICEF sem skipta honum bróðurlega á milli sín. Eftir því sem fleiri heimili kaupa diskinn eykst hagnaður samtakanna.

UNICEF mun nota sinn hluta ágóðans til frekari eflingar á starfi sínu hér á landi og til að afla fjár til verkefna UNICEF um heim allan. Meðal verkefna sem UNICEF vinnur að í þróunarlöndunum er að sjá til þess að ungabörn fái nauðsynlega næringu og umhyggju, að veita börnum góða grunnmenntun og lífsnauðsynlegar bólusetningar og bætiefni.

Umhyggja mun annars vegar nota þá fjármuni sem félaginu falla í skaut til að efla Styrktarsjóð félagsins en hlutverk Styrktarsjóðs Umhyggju er að styrkja langveik börn og fjölskyldur þeirra sem lent hafa í verulegum fjárhagserfiðleikum. Hins vegar mun Umhyggja fjármagna stöðugildi sérfræðings sem veitir fjölskyldum langveikra barna sálfélagslegan stuðning.

Mörg af stærstu fyrirtækjum landsins styðja átakið: Íslandspóstur, 365 ljósvaka- og prentmiðlar, Jónar Transport, Actavis og Landsbanki Íslands, sem er fjárhagslegur bakhjarl og umsjónaraðili átaksins.