UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Hvert þeirra átta landa sem lentu í flóðbylgjunum við Indlandshaf hafa mismunandi þarfir, allt frá því að endurbyggja skóla til að koma á viðunandi vatns- og hreinlætiskerfi. UNICEF styrkir hvert land fyrir sig og fer eftir heildaráætlun hverrar ríkisstjórnar um uppbyggingu.
Meirihluti neyðaraðstoðar UNICEF hefur farið til Indónesíu og Sri Lanka, sem eru þau lönd sem hvað verst lentu í hamförunum fyrir hálfu ári síðan.
Indónesía
Í Indónesíu hefur verið lögð mest áhersla á menntun, en áætlað er að um 60 prósent af fjárstuðningi við landið (um 190 milljónum dollara) verði veitt til menntaverkefna. UNICEF hefur veitt 90 milljónum til að byggja 300 nýja skóla og endurbyggja aðra 200 í Aceh og Nias á næstu tveimur árum. Á meðan uppbygging stendur yfir hefur UNICEF leitað samstarfs við Alþjóðaskrifstofu fólksflutninga (International Office of Migrations) um að byggja 200 tímabundna skóla.
Önnur áhersluatriði eru heilsuvernd og vatn, en UNICEF sér um að skipuleggja og byggja innra kerfi, veita hjálpargögn og þjálfun aðila í samfélögunum.
Sri Lanka
Landsskrifstofa UNICEF í Sri Lanka hefur þróað þriggja ára áætlun sem samtvinnar allar neyðar- og þróunaraðgerðir og mun um 136 milljónum dollara vera varið í þær aðgerðir. Með verkefnunum munu meira en hálf milljón manns fá vatns- og hreinlætisaðstöðu, en 4400 klósettum og 6300 vatnstönkum verður komið upp, ásamt um 1600 sturtuklefum.
Einnig er lögð áhersla á menntun á Sri Lanka eins og víða annars staðar. UNICEF mun hjálpa ríkisstjórninni að byggja upp 25 skóla og halda áfram að senda nauðsynleg skólagögn til allra barna sem á þurfa að halda á svæðinu.
Önnur lönd
Maldív-eyjur eru sérstaklega viðkvæmar gagnvart vatnsskorti og vinnur UNICEF helst á því sviði, sem og að menntun. UNICEF mun m.a. veita meira en 2500 tanka af vatni fyrir skóla, heilsugæslustöðvar og aðrar þjónustustöðvar.
Á Indlandi er lögð lykiláhersla á heilsuverkefni. UNICEF mun aðstoða heilsugæsluyfirvöld í landinu við að bæta varnir gegn sjúkdómsfaraldri og mun m.a. bólusetja og bæta kerfi til að fylgjast með sjúkdómum. UNICEF mun veita sjúkragögn og styrkja mæðraeftirlit og heilsugæslu fyrir börn í Tamil Nadu-héraði.
Tæland, Malasía, Myanmar og Sómalía fá öll aðstoð á mörgum sviðum, en þá sérstaklega hvað varðar verndun barna.