English version

Clinton-sjóðurinn og UNICEF hefja vatnsátak á flóðasvæðunum

Bill Clinton fyrrvverandi forseti Bandaríkjanna og Carol Bellamy, framkvæmdarstjóri UNICEF tilkynntu í gær sameiginlegt átak þar sem ætlað er að færa börnum og fjölskyldum þeirra, sem lentu í flóðbylgjunni, hreint drykkjarvatn og hreinlætiskerfi (vatnslagnir, skolplagnir o.fl.). Bellamy segir að milljónir manns skorti hreint vatn og eiga í hættu á að smitast af banvænum sjúkdómum, líkt og kóleru og niðurgangi, sem berst með menguðu vatni. Börn, sem eru að minnsta kosti þriðjungur íbúa svæðanna, séu sérstaklega viðkvæm fyrir sjúkdómum sem berast með vatni.
Sjóðurinn mun gera UNICEF kleift halda áfram að dreifa hreinu vatni, vatnshreinsunartöflum og vatnshreinsunarbúnaði fyrir heimili. Sjóðurinn mun einnig fjármagna byggingu neyðarsalerna og koma upp hreinlætisaðstöður þar sem heilsugæsla, spítalar og skólar hafa forgang.

Þegar megin markmiðunum verður náð mun hinn nýi Vatns- og hreinlætisjóður hjálpa viðkomandi ríkjum yfir lengri tíma með umsjón með vatnsbólum og hreinlætiskerfum. Sjóðurinn mun enn fremur styrkja hreinlætiskennslu í skólum og í umræðuhópum innan samfélagsins.
Vatns- og hreinlætisjóðnum verður stjórnað af bandarísku landsnefndinni fyrir UNICEF og mun framlögum veitt beint til verkefna UNICEF.