Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Börn í Bangladess fá bólusetningu

Í síðasta mánuði fóru bólusetningarteymi, stutt af UNICEF, um Bangladess í stærsta bólusetningarverkefni gegn mislingum í heimi. Áætlað er að ná til 33,5 milljóna barna. Teymin fóru á alla staði sem börn eru að finna; í skóla, garða, stofnanir, íbúðahverfi, strætóa og lestarstöðvar.

Mislingar er mest smitandi sjúkdómur sem þekkist. Hann veikir ónæmiskerfið og gerir barnið veikara fyrir alvarlegum afleiðingum lungnabólgu, ofþornun og vannæringu. Í Bangladess eru nær 20 þúsund börn sem látast vegna mislinga á hverju ári. Þau sem lifa sjúkdóminn af eiga oft í heilsufarslegum erfiðleikum og þjást vegna varanlegrar fötlunar, þar á meðal blindu, heyrnarleysi og heilaskaða.

Samt kostar það aðeins 1 dollara eða 69 krónur að veita barni bólusetningu gegn mislingum.

Bólusetningarherferðir skila árangri
Það er þess vegna sem UNICEF er leiðandi í bólusetningum og nær til 40 prósent allra barna í heiminum. Í þessu stóra bólusetningarátaki, sem kallað er „Measles Cach Up Campaign”, er UNICEF í samstarfi við ríkisstjórn Bangladess, Alþjóðaheilbrigðismálastofnunina og önnur samtök. 

Átakið nær til allra barna undir tíu ára aldri, þar á meðal þeirra sem þegar hafa verið bólusett. Hlutverk UNICEF er að tryggja átakinu nóg af bóluefni og það sem þarf til að veita bólusetningu, t.d. sprautur, kælibox og annað slíkt. UNICEF styður einnig verkefni er snýr að því að vekja athygli fjölskyldna og samfélagsins alls á átakinu og þörfinni fyrir bólusetningu.

Svipuðum bólusetningarherferðum er stýrt í hverri viku víða um heim. Í desember lauk ríkisstjórnin í Nígeríu stærsta bólusetningarátaki gegn mislingum sem um getur í Afríku með stuðningi UNICEF og samstarfsaðila.

Þökk sé bólusetningarherferðum um allan heim hefur okkur tekist að lækka dauðsföll vegna mislinga um 40 prósent á árunum 1999 til 2005.

Það er vegna stuðnings heimsforeldra og annarra styrktaraðila að UNICEF getur veitt börnum þá lífsgjöf sem bólusetning er og stuðlað að bættri heilsu allra barna.