English version

Ungmenni taka þátt í baráttunni gegn alnæmi

Samkvæmt tölum frá UNAIDS breiðist HIV hraðast út í Austur Asíu en á nokkru öðru svæði í heiminum. ,,Við erum á krossgötum á þessu svæði og til að bregðast við með öflugum hætti verður að taka tillit til barna og ungmenna og þau verða að taka þátt,” sagði svæðisstjóri UNICEF í Austur Asíu, Anupama Rao Singh, við opnun ráðstefnu um börn og HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu sem hófst í Hanoi í Víetnam í gær.

Börn og ungmenni geta spilað mjög stórt hlutverk við að berjast gegn útbreiðslu HIV í Austur Asíu og Kyrrahafinu. Samt sem áður eru þau vart sjáanleg í forvörnum gegn sjúkdómnum samkvæmt fulltrúum alþjóðlegra heilbrigðisstarfsmanna. UNICEF vinnur að því að hvetja börn og ungmenni til þátttöku í baráttunni gegn HIV/alnæmi og þá sér í lagi hvað varðar fræðslu og forvarnir um sjúkdóminn.

Viðhorf til smitaðra og lyf til allra barna!
Þrettán ungmenni á aldrinum 12-18 ára taka þátt í ráðstefnunni og lögðu þau áherslu á að baráttan gegn HIV/alnæmi og öll stefnumótun yrði að taka tillit til þeirra. ,,Viðhorf stjórnvalda virðist vera sú að veita aðeins fullorðnum athygli. Þau hlusta ekki á hvað börn hafa að segja þó svo að sjúkdómurinn hafi mest áhrif á okkur,” sagði Lhagvasuren Boldbataat, 17 ára þátttakandi frá Mongólíu.

Á næstu dögum ráðstefnunnar munu ungmennin ræða reynslu sína af baráttunni gegn HIV/alnæmi og koma sér saman um skilaboð sem þau vilja senda ríkisstjórnum, Sameinuðu þjóðunum og öðrum alþjóðastofnunum sem hafa áhrif í baráttuna gegn sjúkdómnum. Ungmennin vilja helst leggja áherslu á að berjast gegn neikvæðum viðhorfum til smitaðra og fyrir því að öll HIV-smituð börn hafi aðgang að lyfjum.

Mörg ungmennanna hafa orðið fyrir beinum áhrifum af HIV/alnæmi, á meðan aðrir hafa verið virkir í baráttunni m.a. með því að fræða önnur ungmenni um forvarnir og um HIV. Þátttakendurnir koma frá Kína, Indónesíu, Laos, Mongólíu, Myanmar, Papúa Nýju-Gíneu og Víetnam, sem heldur ráðstefnuna.

HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu
Áætlað er að 31 þúsund börn undir 15 ára aldri séu smituð af HIV/alnæmi í Austur Asíu og Kyrrahafinu - þar af greindust 11 þúsund árði 2005. Um 450 þúsund börn hafa misst annað eða báða foreldra vegna alnæmis. Tala smitaðra er hlutfallslega lág í Austur Asíu en sérfræðingar vara við því að ef hækkunin verði lítið meiri muni það leiða til stórhækkunar á nýsmitun.