UNICEF eru algjörlega ópólitísk samtök og vinnur með stjórnvöldum, frjálsum félagasamtökum og fleiri aðilum í hverju landi fyrir sig í þeim tilgangi að tryggja réttindi allra barna.
Þú ert hér:
Í næstu viku hefst söfnunarátak UNICEF Dagur rauða nefsins sem nær hámarki með sjónvarpsútsendingu á Stöð 2 þann 1. desember. Lag Baggalúts „Brostu“ verður kynnt í þætti Hemma Gunn í kvöld (2. nóv), en það var samið sérstaklega fyrir átakið.
Það verður mikið um grín, glens og spaug í aðdraganda Dags rauða nefsins. Þá verður kímni og hlátri beitt til að vekja athygli á bágbornum aðstæðum barna víða um heim. Ýmsir þjóðþekktir einstaklingar taka þátt í átakinu og leggja þannig góðu málefni lið.
Einstaklingar eru hvattir til að gerast heimsforeldrar, kaupa rauð trúðanef og geisladisk með lagi Baggalúts „Brostu“. Þá eru landsmenn hvattir til þess að horfa á Stöð 2 í opinni dagskrá að kvöldi 1. desember, þar sem einvalalið skemmtikrafta og grínista munu leggja sitt af mörkum til að skemmta landanum og um leið hvetja fólk til að bæta líf bágstaddra barna. Átakið hefst með formlegum hætti í næstu viku og þá koma rauðu trúðanefin og geisladiskur Baggalúts í búðir.
Hugmyndin að baki Degi rauða nefsins er að gleðjast og gleðja aðra, og þá sérstaklega að gleðja börn sem búa við sára neyð. Fólk fær tækifæri til þess að kynnast aðstæðum barna í Afríku og rétta fram hjálparhönd með því að gerast heimsforeldrar UNICEF.
Dagur rauða nefsins
Hugmyndin að Degi rauða nefsins kemur frá bresku góðgerðasamtökunum Comic Relief sem samanstendur af landsliði breskra grínleikara. Hópurinn varð til vegna hungursneyðarinnar í Eþíópíu árið 1985. Árið 1988 stóðu Comic Relief fyrir fyrsta Degi Rauða nefsins (e. Red Nose Day) og síðan þá hefur dagurinn verið haldinn annað hvert ár til að safna fé til hjálparstarfs í Afríku. Ýmsar leiðir eru farnar í söfnunarátakinu, en í grunninn fer söfnunin fram með sölu á rauðum trúðanefjum. Hápunktur söfnunarinnar er sjónvarpsútsending, þar sem kímni og hlátri er beitt til að koma alvarlegum boðskap til skila. Frá 1985 hafa yfir 2000 skemmtikraftar gefið vinnu sína til góðs, en þar má telja Lenny Henry, John Cleese, Jerry Springer, Johnny Depp, Ali G, Little Britain hópurinn, Robbie Williams, Woody Allen, Rowan Atkinson, o.fl. Dagur rauða nefsins hefur fest sig í sessi sem einn af stærstu góðgerðarviðburðum Bretlands.
Hin íslenski Dagur rauða nefsins verður ekki síðri. Fyrir utan sölu á rauðum nefjum og á geisladisknum með laginu Brostu eftir Baggalút, mun fríður flokkur leikara halda uppi miklu gríni og glensi í þriggja tíma beinni útsendingu á Stöð 2 þann 1.desember. Við hvetjum alla til að fylgjast vel með, brosa og taka þátt!