UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.
Þú ert hér:
Ofbeldi gegn konum og börnum í Darfur héraði er orðið ógnvænlega algengt. Títt hefur verið um gróft ofbeldi frá því borgarastríðið hófst árið 2003, en síðastliðna mánuði hefur þó árásum á konur og börn, bæði innan og utan flóttamannabúða, stórfjölgað.
Aukningu ofbeldisins má m.a. rekja til fjölgunar í þeim hópum sem taka þátt í glæpunum. Stríðandi fylkingar sækjast eftir hefnd á hvor öðrum með því að niðurlægja og refsa almennum borgurum og þar með vanvirða þeir algjörlega alþjóðalög. Auk þess, eru litlar sannanir fyrir því að sakamenn af þessu tagi séu sóttir til saka og hvað þá refsað fyrir gjörðir sínar.
Barnahjálp SÞ (UNICEF), Mannfjöldasjóður SÞ (UNFPA), Þróunaráætlun SÞ (UNDP), Skrifstofa SÞ fyrir samhæfingu mannúðarmálefna (OCHA), Þróunarsjóður SÞ fyrir konur (UNIFEM) og sérstök nefnd öryggisráðsins um börn í stríði hvetja alla deiluaðila að hlíta samþykktum öryggisráðs SÞ og minna súdönsk stjórnvöld á skyldur sínar um að rannsaka alla glæpi, sér í lagi þá sem framdir eru gegn konum og börnum. Auk þess verður að gera meira til að veita fórnarlömbum ofbeldisglæpa og almennum borgurum aukna vernd.
Ofangreindar stofnanir og sjóðir SÞ hvetja friðargæslulið Afríkusambandsins (African Union) til að taka aftur upp fylgd með fólki sem vill sækja eldivið og svæðisvaktir, þar á meðal að halda úti vopnaðri vakt innan flóttamannabúða, í þeim tilgangi að stöðva ofbeldi gegn konum og börnum. Að lokum verður að leyfa frjálsum félagasamtökum að veita fórnarlömbum ofbeldisglæpa stuðning án þess að eiga á hættu á að starfi þeirra verði ógnað.