Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Neyðin í Darfur - yfirlýsing frá framkvæmdastjóra UNICEF

Eftirfarandi yfirlýsing var send frá Ann M. Veneman, framkvæmdastjóra UNICEF í dag: „Enn eru börn fórnarlömb tilgangslausra morða í Darfur. Áætlað er að 400 þúsund manns hafi týnd lífi í átökunum. Um 1,9 milljónir manna hafi þurft að flýja heimili sín og nærri 3 milljónir þurfa að treysta á alþjóðlegar hjálparstofnanir um mat, skjól og heilsugæslu.

Ofbeldið í Darfur hefur gert hjálparstarfsfólki gríðarlega erfitt fyrir að mæta þörfinni fyrir neyðaraðstoð. Dregið hefur úr skólasókn barna og næringarskortur er allt að 27% í sumum hlutum Darfur-héraðs. Auk þess er heilsugæslan að verða að molum. Kynferðislegt ofbeldi gegn konum og börnum er daglegt brauð og fólki er farið að lengja eftir stað þar sem þau geta fundið fyrir öryggi.

Heimurinn getur ekki og ætti ekki að láta þessi tilgangslausu átök halda áfram. Við köllum eftir að allir aðilar hætti átökunum og verndi fjölskyldur og börn þessa lands.“