Vissir þú að...

hlutfallslega flestir heimsforeldrar eru á Íslandi eða 5% þjóðarinnar. Svíar eru samt að ná okkur... koma svo, vertu með!

Þú ert hér:  

Dúkkur í sumargjöf

Nú er lóan komin að kveða burt snjóinn og sumardagurinn fyrsti á næsta leyti. Á þeim degi gefa margir sumargjöf og eru dúkkurnar sem gleðja tilvalin sem slík. Þær voru saumaðar síðasta sumar af konum í 90 kvenfélögum víðsvegar að af landinum til styrktar stúlkum í Gínea-Bissá. Hver dúkka kostar 5000 krónur og er hægt að kaupa þær á skrifstofu UNICEF Ísland að Laugavegi 42, Iðu Lækjargötu og Býflugunni og blóminu, Glerárgötu 36, Akureyri.