Vissir þú að...

UNICEF veitir börnum í yfir 90 löndum hreint vatn og bætir hreinlætisaðstöðu í skólum og samfélögum.

Þú ert hér:  

Ann M. Veneman heimsækir Ísland

Framkvæmdastjóri UNICEF, Ann M. Veneman, mun heimsækja Ísland næstkomandi föstudag. Um þessar mundir eru rúm tvö ár frá því landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi hóf störf og mun UNICEF nú gera framtíðarsamning við landsnefndina sem þýðir að landsnefndin starfar áfram undir merkjum UNICEF og skuldbindur sig til að afla fjár fyrir verkefni UNICEF og fylgja stöðlum samtakanna. Undirritun samningsins markar tímamót í starfi Barnahjálpar Sameinuðu þjóðanna á Íslandi.

Ann M. Veneman og Barnahjálp Sameinuðu þjóðanna á Íslandi skrifa formlega undir samstarfssamninginn á skrifstofu UNICEF að Laugavegi 42, föstudaginn 14. júlí, kl. 14:10. Veneman mun einnig eiga fund með Velgerði Sverrisdóttur, utanríkisráðherra.

Ann M. Veneman tók við embætti 1. maí 2005 og varð þar með fimmti framkvæmdastjóri UNICEF í 60 ára sögu samtakanna. Barnahjálpin stendur vörð um líf barna í 157 löndum og byggir starf sitt á Þúsaldarmarkmiðum Sameinuðu þjóðanna um þróun, en þau miða m.a. að því að draga úr fátækt og tíðni ungbarnadauða og auka menntun fyrir árið 2015. UNICEF treystir eingöngu á frjáls framlög einstaklinga, fyrirtækja og ríkisstjórna.

Fyrri störf
Áður en Veneman tók að sér starf framkvæmdastjóra UNICEF starfaði hún lengi í landbúnaðarráðuneyti Bandaríkjanna og sem landbúnaðarráðherra. Hún hefur m.a. leitt verkefni sem miða að því að draga úr hungursneyð og styrkja matarframleiðslu í þróunarlöndunum. Sem landbúnaðarráðherra stýrði hún stórum alþjóðlegum verkefnum á borð við “Global Food for Education Program” sem veitir börnum í þróunarlöndum skólamáltíðir. Verkefnið náði til 4000 þúsund skóla og jókst ásókn í skólana um 12%.

Á ferli sínum hefur Veneman einbeitt sér mikið að heilsugæslu og að draga úr vannæringu barna um allan heim. Hún hefur tekið þátt í verkefnum sem auðvelda þróunarlöndum að tileinka sér tækni í landbúnaðarframleiðslu og til að ná markmiðum World Food Summit um að draga úr hungursneyð í heiminum um helming fyrir árið 2015. Hún hefur einnig skipulagt og stjórnað alþjóðlegum ráðstefnum um þessi málefni.

Á ferli sínum hefur Veneman starfað náið með mörgum alþjóðlegum stofnunum eins og Matvælastofnun SÞ, Matvæla- og landbúnaðarstofnun SÞ, Alþjóðaviðskiptastofnuninni, Alþjóðabankanum, auk fjölda hagsmunahópa og félagasamtaka.

Veneman er málsvari heilbrigðs lífernis og hefur hún komið á fót menntaverkefnum og rannsóknum sem miða að því að fyrirbyggja offitu sem verður æ stærra vandamál í Bandaríkjunum.

Sterkur leiðtogi
Veneman er sterkur leiðtogi og leggur mikla áherslu á gegnsæi í stjórnsýslu og fjármálum. Í hennar tíð sem landbúnaðarráðherra fékk ráðuneytið í fyrsta skipti engar athugasemdir frá fjármálaeftirliti og hélt ráðuneytið þeirri stöðu þrjú ár í röð. Ráðuneytið bætti einnig stjórnskipan og framleiðslugetu í hennar tíð.

Veneman hefur ávalt hvatt ungt fólk til dáða og kom m.a. á fót verkefninu “Leaders of Tomorrow” í landbúnaðarráðuneytinu, hún jók fjölda starfsnema í ráðuneytinu og hvatti ungt fólk til að taka þátt í stjórnsýslunni.

Veneman er með bachelor gráðu í stjórnmálafræði, mastersgráðu í opinberri stefnumótun og doktorsgráðu í lögfræði. Hún hefur setið í ýmsum nefndum og ráðum og hlotið fjölda viðurkenninga fyrir störf sín.