Vissir þú að...

126 milljónir barna stunda lífshættulega vinnu. Vertu með okkur í liði til að breyta þessu.

Þú ert hér:  

Neyðarástand vegna átakanna í Austur-Kongó

Í nýrri skýrslu UNICEF sem kynnt var í dag kemur fram að 1200 manns láta lífið daglega sökum átakanna í Austur-Kongó. Helmingur þeirra eru börn. Talið er að tugir þúsunda íbúa hafi orðið fórnarlömb ofbeldis, en miklu fleiri hafa látist vegna sjúkdóma og vannæringar sem rekja má til átakanna. Stöðug átök í landinu hafa neytt fjölda íbúa til að yfirgefa heimili sín og eru skólar og heilsugæslustöðvar í lamasessi.

Átökin í Austur-Kongó hafa staðið yfir í nær áratug, en vonast er til að kosningarnar 30. júlí muni verða til þess að landið færist í átt til friðar.

Breski fjölmiðlamaðurinn Martin Bell gerði úttekt á ástandinu í Austur-Kongó fyrir UNICEF og sagði hann á blaðamannafundi í London að átökin í Austur-Kongó væru þau banvænlegustu í heiminum. „Það er auðvelt að láta það sem hefur gerst í Austur-Kongó vera yfirþyrmandi, bara sökum stærðar þess.”

Talið er að um 4 milljónir manna hafi látist í átökunum, en margir segja töluna enn hærri. Til samanburðar má segja að á sex mánuðum látast fleiri vegna átakanna í Austur-Kongó en vegna flóðbylgjunnar í Suður-Asíu í desember 2004.

Austur-Kongó er dæmi um falið neyðarástand sem UNICEF fylgist náið með og reynir að sinna verkefnum og þörfum barna þar eftir fremsta megni. Við þurfum samt þína hjálp og hvetjum þig til að legga þitt af mörkum með því að gerast heimsforeldri hér á síðunni.

Nánar um skýrsluna hér.