Vissir þú að...

93 milljónir barna hafa ekki tækifæri til að ganga í skóla – meirihluti þeirra eru stúlkur.

Þú ert hér:  

Landið sem gleymdist

UNICEF Ísland vekur athygli á nýrri heimildamynd Dúa J. Landmark um Vestur Afríkuríkið Gíneu-Bissá, menningu þess, stöðu barna og verkefni UNICEF. Myndin verður frumsýnd í Sjónvarpinu 11. apríl kl. 21:15 og endursýnd á Páskadag 16. apríl kl. 11:05. Myndin er mjög sláandi og sýnir vel hvernig fólk reynir að draga fram lífið þrátt fyrir erfiðar aðstæður.

Um myndina
Gínea-Bissá -Landið sem gleymdist er ný heimildamynd eftir Dúa J. Landmark sem segir frá því þróunarstarfi sem UNICEF á Íslandi hefur unnið í Gíneu-Bissá í samvinnu við íslensk fyrirtæki og almenning. Myndin segir frá daglegu lífi og aðstæðum barna í Gíneu-Bissá, þeirri þörf sem er fyrir þróunaraðstoð í landinu og starfinu sem verið er að vinna til að gera líf íbúa þessa fátæka lands léttbærara. Myndin var tekin upp í Gíneu-Bissá á árinu 2005.

Öflugt samstarf Íslands og Gíneu-Bissá
Allt frá stofnun UNICEF á Íslandi í mars 2004 hafa nær öll tvíhliða verkefni landsnefndarinnar beinst að hinu fátæka ríki í Vestur Afríku, Gíneu-Bissá. Þau verkefni sem styrkt hafa verið af íslenskum fyrirtækjum, einstaklingum og félagasamtökum nema nú um 3,5 milljónum dollara til næstu ára og má áætla að stuðningurinn frá Íslandi nemi um 2,5 prósentum af landsframleiðslu Gíneu-Bissá. Eins og gefur að skilja er sá stuðningur gífurlega mikil lyftistöng fyrir landið í heild.
Framlögin frá Íslandi renna til verkefna UNICEF sem lúta að umönnun ungabarna, menntun, framleiðslu á joðbættu salti og verkefni sem ætlað er að stemma stigu við ýmsa algenga sjúkdóma. Þegar hafa verið byggðir fjölda leikskóla eða svokölluð Djemberem og aðstaða heilsugæslustöðva bætt. Um 130 skólar verða byggðir á næstu árum og munu nær 100 þúsund börn fá tækifæri til að sækja nám.