UNICEF bólusetur 100 milljónir barna á ári um allan heim. Talið er að það bjargi lífi 2,5 milljóna barna.
Þú ert hér:
Samkvæmt upplýsingum frá UNICEF fer ástandið í Líbanon hraðversnandi eftir að átök brutust þar út. Áætlað er að átökin hafi þegar kostað yfir 200 borgara lífið og sært yfir 400, um 30 prósent þeirra eru börn. Talið er að um 400 þúsund manns hafi flúið heimili sín. Flest þeirra hafa flust til ættingja og vina á öruggari svæðum, en allt að 40 þúsund manns hafa leitað skjóls í skólabyggingum. Um 70 skólar eru notaðir sem skjól þegar þessar upplýsingar eru ritaðar. Reiknað er með að þessar tölur muni koma til með að hækka næstu daga og vikur. Aðgangur að átakasvæðum veldur áhyggjum hjálparstofnana.
Flugvellir, vegir, orkuver, brýr og bensínstöðvar hafa verið eyðilagðar sem kemur í veg fyrir að hægt sé að veita íbúum grundvallarþjónustu. Líbanon er að verða algjörlega einangrað þar sem öllum samgönguleiðum til og frá landinu hefur verið lokað, utan nokkurra vega í átt að Sýrlandi. Herinn hefur lokað svæði og þorp af í Suðri, og þar með einangrað þau alveg. Þessi staða ógnar öryggi borgarbúa og kemur í veg fyrir að neyðaraðstoð berist þeim.
UNICEF vinnur með öðrum hjálparstofnunum Sameinuðu þjóðanna að sameiginlegri neyðaraðstoð á svæðinu, en þarf yfir hálfan milljarð króna til að bregðast við neyðarástandinu.
Að nálgast átakasvæðin
Aðgangur að átakasvæðum er mikið áhyggjuefni meðal hjálparstofnana. Með tilliti til þess óöryggis sem ríkir nú í Líbanon er mikilvægt að allir aðilar virði það alþjóðlega grundvallarsamkomulag að hjálparstarfsmenn fái óhindraðan aðgang að átakasvæðum. Í dag gætir mest óöryggis í suðurhluta Líbanon, þar á meðal í flóttamannabúðum, en aðgangur að þeim svæðum er nú heftur.
Þar sem samgönguleiðir hafa verið eyðilagðar eða heftar mun það kosta enn meira fjármagn að koma hjálpargögnum til þurfandi íbúa.
Tala flóttamanna mun margfaldast
Áætlað er að um 40 þúsund manns sem hafa verið neydd til að flýja heimili sín og halda til í skólum eða almenningsgörðum. Flóttafólkið heldur til í um 70 skólum og talið er að enn fleiri skólar verði notaðir sem slíkir innan tíðar, en það gæti skapað slæmt ástand að mati UNICEF. UNICEF vinnur nú að því að meta ástandið, gera kort af hugsanlegum svæðum þar sem fólk heldur til og koma neyðargögnum til fólks þar sem þess er helst þörf.