UNICEF er sjálfstæð stofnun innan Sameinuðu þjóðanna og sem slík er hún ekki á föstum framlögum frá Sameinuðu þjóðunum.
Þú ert hér:
Um þessar mundir eru íslensk börn að byrja í skóla á ný eftir sumarfrí. Í Líbanon er ástandið viðkvæmt en samkvæmt UNICEF liggur nú mikið við að skólastarf í Líbanon raskist sem minnst. UNICEF styrkir verkefni ríkisstjórnar Líbanon sem eiga að tryggja það að börn byrji í skólanum á réttum tíma. UNICEF mun m.a. veita 350 þúsund börnum skólatöskur og dreifa skólagögnum í 1500 skóla, auk þess mun UNICEF styðja uppbyggingu á 150 skólum í Beirút og nágrenni þar sem flóttamenn leituðu sér skjóls á meðan á átökunum stóð.